Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Stuðmenn héldu stofutónleika fyrir hópi kvenna – Nær máttlausar af hrifningu

Hópur heppina vinkvenna datt í lukku­pottinn árið 1975 er þau unnu einka­tónleika Stuðmanna, heima í stofu.

Árið 1975 kom út fyrsta hljóm­plata Stuðmanna en bar hún nafnið Sumar á Sýrlandi. Í eitt plötu­umslagið hafði hljóm­sveitin sett verð­launamiða en átti sá er fékk miðann að fá Stuðmenn inn á stofu hjá sér þar sem þeir myndu spila lög af plötunni.

Nú-tíminn, partur af blaðinu Tíminn, skrifaði vægast sagt skemmtilega grein um þennan undanfara Hafnfirsku tónleika­hátíðarinnar Heima. Ljós­myndirnar sem fylgdu greininni eru ómetanlegar.

„Það var stór hópur kvenna sem var stál­heppinn um daginn, er Stuðmenn léku í stofunni heima hjá þeim,“ segir í byrjun greinarinnar. Haft var eftir einum Stuð­mannanna að konurnar hefðu hringt í þá og tilkynnt um vinninginn. „Já, það var þannig, að konurnar hringdu í viðtals­tíma Stuðmanna (milli 5-7 á föstu­dögum) og sögðu að þær hefðu þennan miða undir höndum, en símanúmer okkar var ritað á miðann með Stuð­mannastöfum.“

Það var svo á þriðjudags­morgni að Stuðmenn komu heim til kvennanna, án þess að gera boð á undan sér. „Okkur þykir það gott, að miðahafar skuli vera stór hópur kvenna, því okkur verður vel til kvenna,“ sagði einn Stuð­mannanna er þeir mættu á svæðið.

Samkvæmt grein Nú-tímans voru konurnar mjög hrifnar af „fágaðri framkomu“ Stuðmanna en þeir dvöldu í stofu þeirra í þrjá klukku­tíma og spiluðu léku öll lög plötu sinnar tvisvar sinnum og b-hlið næstu plötu einu sinni. Þá segir einnig að konurnar hafi verið mjög ánægðar með heimsókina. „Urðu konurnar nær mátt­lausar af hrifningu enda stigu Stuðmenn dans við þær. Og höfðu konurnar á orði, að jafn fölskva­lausu látbragði hefðu þær aldrei kynnzt.“

Stuðmenn sögðust hafa verið stressaðir að spila í fyrsta skipti heima í stofu hjá einhverjum. „En ósvikin hrifning kvennanna svo og svo þessi útlenzki hljóm­burður hérna, gerði það að verkum að tauga­óstyrkurinn hvarf eins og Stuð­mannaplata úr hljómplötuverzlunum!“

Eftir tónleikana kíktu Stuðmenn út á götu hvar voru fyrir nokkur börn. En þegar íbúar hverfisins birtust fylktu liði í skrúð­göngu, með lárviðar­sveig, létu Stuðmenn sig hverfa. Samkvæmt Nú-tíma­greininni.

Á þessum tíma komu Stuðmenn aldrei fram nema með furðulegar og allt að því óhugnanlegar grímur. Myndirnar sem fylgja fréttinni og teknar af Gunna ljós, eru stórkostlegar og eins og segir í uppruna­legu greininni, myndirnar skýra sig eflaust sjálfar.

Baksýnis­spegill þessi er endur­birtur en hann birtist fyrst 1. október 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið