Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Birtir ósvífið bréf leigufélags – Hækkuðu leigu Brynju um 75 þúsund: „Hlökkum til að heyra frá þér“

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, birtir á Facebook bréf sem Brynjar nokkur, 65 ára, fékk á dögunum frá leigusala sínum, leigu­félaginu Ölmu. Þar er henni kynnt að leiga hennar hafi hækkað um 75 þúsund krónur á mánuði og sé nú 325 þúsund krónur. Ragnar segir bréfið sláandi enda sýni það vel miskunarleysi og græðgi leigu­félaga.

Hér fyrir neðan má lesa færslu Ragnars í heild sinni.  

Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigu­félagi sem er vægast sagt sláandi.

Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigu­samning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mánuði frá og með febrúar næst­komandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma.

Ég ræddi við Brynju seinni­partinn í dag og var samtalið og saga hennar sláandi en því miður ekki einsdæmi. Ég fékk góðfúslegt leyfi hennar til að birta þetta þar sem hún er nauðbeygð til að flytja út þar sem útilokað er fyrir hana að standa undir þessari hækkun.

Brynja er sjúklingur en hefur ávalt staðið í skilum við leigu­félagið eins og flestir gera með því að borga leiguna fyrst og lifa á hafra­graut megin hluta mánaðarins.

Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðs­hreyfingunni að hækka laun um 133.000kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðar­auka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálfstæðis­flokkurinn hefur unnið hvað harðast gegn því að leigu­bremsu verði komið á til að sporna við gengdar­lausri græðgi og því miskunnar­leysi sem viðgengst á leigu­markaði.

Sjá samskipti leigu­félagsins við Brynju sem fékk heldur dapurlega jólagjöf frá leigu­félaginu eins og hún orðar það sjálf:

Sæl Brynja,

Nú líður að endurnýjun leigu­samnings þíns vegna Hverfis­götu 59, íbúð 102. Núverandi leigu­samningur rennur út 31.01.2023 næst komandi. Við viljum endilega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að endurnýja leigu­samninginn þinn frá 01.02.2023.

Við getum boðið þér endurnýjun á leigu­samningi með grunnleigu­verð kr. 325.000.- og upphafs­vísitölu 555,6. Athugaðu að upphafs­vísitala samnings miðast við nóvember mánuð 2022.

Greiðsla skv. núverandi leigu­samningi í nóvember er kr. 249.753,-

Við bjóðum upp á tíma­bundna leigu­samninga til 12 mánaða eða langtíma­samninga til allt að 60 mánaða. Innheimt er álag ofan á grunnleigu­verð langtíma­samninga sem ákvarðast af lengd samnings. Meðfylgjandi er skjal með frekari útskýringum.

Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síðasta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að endurnýja samninginn þinn.

Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú hefur frekari spurningar eða ef eitthvað er óljóst.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Með kveðju,

Starfs­fólk Ölmu

Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjandanum við erum komin sem samfélag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis