Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Ótrúleg heimska: Svo voru þær bara reknar

Eftir // Jón Óðinn Waage

Ég þekki konu sem að árum saman vann við ræstingar hjá opinberu fyrirtæki. Þær voru tvær sem unnu við þetta. Stundum þegar þær mættu til vinnu voru starfs­menn enn að störfum. Þá komu þær bara aftur eða settust niður og fengu sér kaffi með sumu af starfs­fólkinu. Þær þekktu vel allt starfs­fólkið og voru í góðum tengslum við það.

Svo þegar kom að þrifunum, þá var þrifið það sem þurfti að þrífa, ekkert hugsað um hvar óhreinindin voru. Launin voru ekkert merkileg en ágæt viðbót við aðra vinnu enda báðar í láglauna­störfum svo ekki veitti af auka­tekjum.

Einn daginn var þeim sagt upp. Það var búið að ráða hrein­gerninga­fyrirtæki til að sjá um þrifin. Þeim stóð til boða vinna hjá því fyrirtæki en fyrir lægri laun.

Þær sögðu nei takk.

Fólkið hjá þessu opinbera fyrirtæki fann mikinn mun. Nú var bara þrifið á ákveðnum tíma, ekkert svigrúm lengur. Þrifin voru eftir ákveðnum reglum, ef óhreinindin voru ekki á réttum stöðum þá voru þau ekki þrifin.

Niður­staðan var þessi:

Þetta opin­bera fyr­ir­tæki greiddi jafn­mikið fyrir þrif og áður, eina breyt­ingin var að nú var þjón­ustan sem greitt var fyrir mun lak­ari. Starfs­fólkið sem sá um þrifin fékk lægri laun.

Hver græddi á þessu? Jú, einhver milli­liður sem hafði verið óþarfur alveg frá því að þetta starf var fundið upp.

Fyrir mörgum er þetta fyrir­komulag eins og trúar­brögð.

Ekki mér, mér finnst þetta heimska.

Jón Óðinn Waage er leið­beinandi barna með hegðunar­vandamál og fyrr­verandi júdó­þjálfari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis