Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Helgi býður sig fram: „Mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“

Helgi Áss Grétarsson.
Helgi Áss Grét­ars­son.

Stór­meistarinn Helgi Áss Grétarsson – fram­bjóðandi til embættis ritara Sjálfstæðis­flokksins – segir í grein sinni, Að taka í hand­bremsuna, „að stundum getur staða manns í skák litið vel út á yfir­borðinu en samt er taflið eiginlega tapað þar eð það er eingöngu andstæðingurinn sem getur þróað og bætt stöðu sína. Sé ekkert gert til að hrista upp í hlutunum þá versnar staðan hægt og sígandi þar til að taflið tapast.“

Bætir við:

„Framsýnir skákmenn hins vegar bregðast við þessum aðstæðum og reyna að breyta gangi mála, t.d. með óvæntum útspilum eins og að fórna liði í því skyni að gera taflið flóknara fyrir andstæðinginn.“

Helgi segir að „Sjálfstæðis­flokkurinn hefur verið stærsti stjórn­málaflokkur landsins frá því að hann var stofnaður árið 1929. Flokkurinn hefur verið burðar­stólpi í þróun íslensks samfélags. Lengst af var hann með hreinan meirihluta í borgar­stjórn Reykja­víkur og á landsvísu var kjörfylgi hans oft og einatt nálægt 40%. Þessir tímar virðast liðnir,“ segir skák­meistarinn og heldur áfram:

„Síðast komst flokkurinn yfir 30% á landsvísu í alþingis­kosningum árið 2007 og síðast komst hann yfir 40% í borgar­stjórnar­kosningum árið 2006. Fylgið hefur staðnað eða dvínað en samt heldur flokkurinn stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins. Lægsta fylgi hans í borgar­stjórnar­kosningum var núna sl. vor og í síðustu tvennum alþingis­kosningum árin 2017 og 2021 hlaut hann sína verstu útkomu, að frátöldum kosningunum sem haldnar voru skömmu eftir efnahags­hrunið haustið 2008, þ.e. vorið 2009.“

Helgi bendir á að „tölfræði er eitt, félags­legur veruleiki er annað. Að mínu mati býr Sjálfstæðis­flokkurinn enn yfir þreki til að snúa taflinu við. Klukkan tifar hins vegar og það kemur ekki að sjálfu sér að breyta hinni pólitísku vígstöðu. Það þarf að endur­skipuleggja með hvaða hætti Sjálfstæðis­flokkurinn nær til kjósenda, ekki síst til þeirra sem yngri eru.“

Að mati Helga er „grundvallar­atriðið í þessum efnum er að flokkurinn ástundi fagleg vinnu­brögð í sínum eigin málum og hafi líflegt félags- og flokks­starf. Á þeim stutta tíma sem ég unnið á vettvangi Sjálfstæðis­flokksins sem stjórn­málamaður hef ég sannfærst um að þar sé um auðuguan garð að gresja af fólki sem vill leggja sitt af mörkum til að flokkurinn dafni og vaxi. Þennan mannauð þarf hins vegar að virkja með mark­vissari hætti.“

Hann segir frá því að „ófáar hugmyndir hef ég í þeim efnum og það er helsta ástæða þess að ég gef kost á mér til embættis ritara Sjálfstæðis­flokksins á lands­fundi sem haldinn verður í Laugar­dalshöll í byrjun nóvember. Framboð mitt byggir einnig á þeirri forsendu að fulltrúi grasrótar flokksins eigi að vera á meðal þeirra sem gegna æðstu embættum flokksins og að það sé kostur að þar sé fulltrúi sveitar­stjórnar­stigsins en ekki að í öllum þeim embættum sitji alþingis­menn og ráðherrar.

Að lokum, mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðis­flokksins áfram að hnigna. Fyrir því eru engin knýjandi rök. Mitt framboð til ritara flokksins snýst öðrum þræði um að benda á þá þörf að flokkurinn grípi í hand­bremsuna og efni til ærlegra skoðana­skipta í því skyni að efla fylgi sitt. Með réttum viðbrögðum núna er nefnilega hægt að snúa vörn í sókn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning