Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ingibjörg um Jón: „Velur bráð sína af kostgæfni – oft einstakling sem er ekki með sterkt bakland“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir fyrr­verandi ráðherra skrifar á Facebook-síðu sína um Jón Baldvin, hennar fyrrum félaga í stjórn­málunum.

Þar gerir hún mál Jóns Baldvins Hannibals­sonar að umtals­efni, en kveikjan að skrifum hIngibjargar Sólrúnar eru dagbókar­færslur Þóru Hreins­dóttur; fyrrum nemanda Jóns Baldvins Hannibals­sonar í Melaskóla árið 1970, sem birtust í forsíðu­úttekt Stundarinnar, en blaðið kom úr prentun fyrir helgi.

Jón Baldvin Hanni­bals­son.

Ingibjörg Sólrún byrjar færsluna svona:

„Jón Baldvin Hannibalsson ekki meir, ekki meir, hugsaði ég þegar ég frétti af þessu máli í síðustu viku og beitti mig eiginlega hörðu til að lesa þessa frásögn. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að dagbókar­færslur Þóru Hreins­dóttur, 15 ára nemanda JBH í Melaskóla 1970, eru ótrúlega merkileg heimild um aðferðir JBH við að ná tökum á Þóru og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hugar­ástand hennar. Í fram­haldinu ákvað ég að lesa aftur allar þær 23 sögur sem safnað hefur verið saman af kynferðis­brotum og áreiti JBH á áratuga tímabili og í ljós kom ákveðið munstur sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

JBH hagar sér eins og rándýr sem velur bráð sína af kostgæfni – oftar en ekki einstakling sem er ekki með sterkt bakland – sækir að henni með skipulögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafnvel trúnað, vingast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eftir­leikurinn auðveldur.“ skrifar Ingibjörg Sólrún og bætir við:

„Þetta er lýsing á ótrúlega ljótum og ójöfnum leik þar sem kennarinn, skóla­meistarinn, ráðherrann og sendi­herrann misbeitir valdi sínu og sækir að unglings­stúlkum. Ég fékk vitneskju um eitt þessar mála árið 2007 þegar ég var formaður Samfylkingarinnar og það varð til þess að ég ræddi í trúnaði við JBH og bað hann að segja sig frá heiðurs­sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir þing­kosningarnar vorið 2007.

Hann varð við þessari ósk minni en í stað þess að láta þar við sitja og sýna svolitla iðrun og hugarangur vegna framferðis síns fór hann rakleiðis í Silfur Egils og vældi yfir því að ég hefði hafnað honum í heiðurs­sætið á pólitískum forsendum. Þetta gerði hann vitandi að ég gæti aldrei sagt opinber­lega hver var hin raun­verulega ástæða fyrir því að ég vildi hann ekki í heiðurs­sætið.“

Hún færir í tal að „það var svo ekki fyrr en 5 árum síðar, þegar Guðrún Harðar­dóttir steig fram, sem ástæðan varð heyrinkunn. En af hverju er ég að skrifa um þetta núna? Er ekki nóg komið? Ég skrifa þetta vegna þess að Jón Baldvin Hannibalsson hefur aldrei viðurkennt misgjörðir sínar og enn láta margir þær sér í léttu rúmi liggja af því þeim finnst JBH hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri pólitík.

Það kemur þessu máli hins vegar ekkert við og menn komast aldrei framhjá þeirri staðreynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum pólitíska vettvangi hefur hann sjálfur lítilsvirt með því að misbeita því valdi sem honum var falið gagnvart fjölmörgum unglings­stúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Hún segir einnig að „ég skrifa þetta líka vegna þess að mál JBH er ekkert einsdæmi. Oft berast sögur af kynferðis­áreitni og nauðung af hálfu karla sem eru vel liðnir, hæfleika­ríkir, vel metnir og hátt á kvisti í verðleika­samfélaginu.

Við eigum mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar misbeiti valdi sínu gagnvart ungum konum og körlum. En það gerist nú samt og ef við neitum að horfast í augu við það þá er okkur líkt farið og fólki fyrri alda sem þagði yfir eða lét kyrrt liggja að heldri menn og valdsmenn misnotuðu undirsáta sína.

Takk Valgerður Þorsteins­dóttir fyrir að birta dagbókar­færslu móður þinnar og takk Bjarni Frímann Bjarnason fyrir þinn kjark. Við hin verðum að hafa kjark til að taka á þessum málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning