Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

„Þeim fannst ég svo ógeðsleg“

Snjólaug Lúðvíks­dóttir opnaði sig upp á gátt

Snjólaug Lúðvíksdóttir
Snjólaug Lúð­víks­dóttir Mynd: Móðurskipið

Snjólaug Lúðvíks­dóttir, uppi­standari og handrits­höfundur, hefur búið víða um ævina en hún steig sín fyrstu skref í uppi­standi í London eftir að hafa lent í ákveðinni lífs­kreppu undir þrítugu.

Snjólaug ræddi um líf sitt við RÚV fyrir stuttu.

Snjólaug ólst fyrst upp í Tromsö í Noregi en flutti fimm ára til Frakk­lands, þar sem hún bjó í úthverfi Suður-Parísar. Hún flutti til Íslands þegar hún var í sjöunda bekk og hafði þá aldrei áður búið hér á landi. Skiptin voru mikil enda segir hún íslenskt skóla­kerfi hafa verið mun frjálslegra en það franska.

Á fullorðins­árum flutti Snjólaug til Bretlands til að læra handrita­skrif og bjó þar í fimm ár. Hún vann meðal annars á kaffihúsi og segir að þegar hún var 29 ára hafi hún verið einhleyp og upplifað sig standa á öðrum stað í lífinu en vinkonur sínar. Hún byrjaði að skrifa brandara um eigin aðstæður og skráði sig í uppistandskeppni.

Fyrsta uppi­standið gekk vonum framar og vann Snjólaug keppnina. Hún segir velgengnina hafa gefið sér mikið sjálfs­traust, jafnvel aðeins of mikið.

Eftir að hún flutti aftur til Íslands var henni boðið að koma fram í hádegis­hléi í Borgar­holtsskóla. Þar beið hennar hins vegar allt annar veruleiki. Snjólaug var þá 31 árs, einhleyp og barnlaus og gerði grín að eigin aðstæðum fyrir framan nemendur skólans.

Brand­ararnir féllu ekki í kramið og segir Snjólaug upplifunina hafa verið harða lendingu eftir velgengnina í London.

„Þegar þú ert 16 ára og horfir á einhvern sem er 31 árs, þeim fannst ég vera svo gömul og þau vorkenndu mér svo mikið. Þau sáu engan veginn grín­hliðarnar á þessu. Þau voru bara: „Ég vona að ég verði ekki svona.“ Þeim fannst ég svo ógeðsleg.“

Snjólaug segir unglingana einfald­lega hafa litið á aðstæður hennar allt öðrum augum en full­orðnir áhorf­endur og því hafi sjálfs­hæðnin ekki skilað þeim hlátri sem hún hafði vanist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“