Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ísland miðstöð snjallvæðingar í Evrópu: „Í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra háskóla, iðn­aðar og nýsköp­unar.

Ísland verður í hópi þeirra Evrópu­landa sem munu hýsa miðstöðvar snjall­væðingar. Þetta varð ljóst þegar umsókn Miðstöðvar snjall­væðingar, studd af stjórn­völdum, fékk jákvæða niður­stöðu frá valnefnd Evrópu­sambandsins.

Ísland hefur fengið 300 millj­óna króna styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu til þess að vinna að uppsetningu þessarar miðstöðvar.

Miðstöðin mun leggja lóð sín á vogar­skálarnar við að byggja upp lifandi umhverfi nýsköpunar á sviði snjall­væðingar með tengingum við Evrópu í gegnum systur EDIH miðstöðvar um gervalla Evrópu.

Miðstöð snjall­væðingar í samstarfi við Rannís mun sömuleiðis vekja athygli á tækifærum til sóknar í Digital Europe Program Evrópu­sambandsins, sem mun verja 7,5 milljörðum Evra til snjall­væðingar­verkefna og því eftir miklu að slægjast fyrir íslensk fyrirtæki á þessu sviði.

Vettvangur til stuðnings við nýsköpun

Ísland hefur verið hluti af áætlun Evrópu­sambandsins um stafræna Evrópu (DIGITAL Europe), sem varir frá 2021 til 2027.

Hluti af áætluninni er að stofna Evrópska miðstöð staf­rænnar nýsköpunar (e. European Digital Innovation Hub: EDIH) hér á landi. Miðstöðin verður sett á laggirnar í haust af Auðnu tækni­torgi í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Rannís, Origo, Syndís ásamt fleiri samstarfs­aðilum og kölluð „Miðstöð snjall­væðingar“.

„Með stofnun seturs um stafræna nýsköpun á Íslandi og stuðningi Evrópu­sambandsins við það sem hluta af stafrænni vegferð Evrópu, er tekið mikilvægt skref í stafrænni þróun samfélagsins og skapaður vettvangur til stuðnings við nýsköpun á því sviði. Með meiri staf­væðingu spörum við fjármuni og gerum kerfið okkar skilvirkara og betra, þetta er í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir. Aukið samstarf stjórn­valda, sveitar­félaga, háskóla og atvinnu­lífsins í átt að aukinni snjall­væðingu kemur því samfélaginu öllu til góðs,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar í samtali við Háskóla Ísland.

Tilkoma Miðstöðvar snjall­væðingar á Íslandi skapar tækifæri til samþættingar, samræmingar og þekkingar­dreifingar á grunn­þáttum snjall­væðingarinnar. Lagt er áhersla á að miðstöðin muni tengja þarfir við þekkingu, færni og reikniafl innanlands og jafnframt bjóða upp á prófana­umhverfi þar sem opinberir aðilar jafnt sem einka­fyrirtæki geta prófað sig áfram í nýjustu tækni án þess að leggja út í miklar fjár­festingar. Samkvæmt verk­efninu verður áhersla lögð á að virkja samlegðar­áhrif og öflugt tengslanet. Og mikil áhersla verður lögð á að bæta tölvu­öryggi á landinu, m.a. með áherslu á framsækin rannsóknar­verkefni og auka framboð menntunar á því sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá