InnlentOfsahræðsla vegna smitsjúkdóms: „Ekki hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu“24. ágúst 2021 Á níunda áratugnum var útbreiddur ótti um að stærstur hluti Íslendinga gæti smitast af eyðni. Sumpart var í gangi ofsahræðsla við þennan skelfilega sjúkdóm sem herjaði fyrst og fremst á samkynhneigða karlmenn. Í júní árið 1985 fjallaði DV um málið og ræddi við yfirlækni á Landspítalanum sem taldi mikla ógn steðja að. „Mér þykir í sannleika sagt of lítið gert...
InnlentAtli lögfræðingur myrti í Öskuhlíð og faldi líkið:„Í næstu andrá stóð ég yfir Einari vini mínum látnum“23. ágúst 2021 Fá morðmál hafa vakið meiri athygli og óhug hin seinni ár en þegar Atli Helgason lögfrœðingur varð Einari Erni Birgissyni, viðskiptafélaga sínum, að bana í Öskjuhlíð 8. nóvember árið 2000. Hann ók með líkið suður á Reykjanes þar sem hann faldi það í hraunsprungu og máði vandlega út öll vegsummerki eftir verknaðinn. Einar og Atli höfðu þekkst um árabil en...
InnlentÍslendingar fóru til Mílanó og Sjanghæ og átu gull: „Það var bara málmbragð“19. ágúst 2021 Þegar útrásin stóð sem hæst og íslenskir víkingar fjárfestu um heimsbyggðina þvera og endilanga var ýmislegt sem stóð upp úr. Firringin var á köflum algjör. Hæst reis bruðlið og ruglið þegar útrásarvíkingarnir og samstarfsmenn þeirra lögðust í gullát. Gullflögur á sveppi Í ferð Glitnis til Sjanghæ í Kína í nóvember árið 2007 var gestunum meðal annars boðið að borða gull....
InnlentSigurður myrti hrottalega á Smiðjuveginum: „Ég sá rautt“18. ágúst 2021 Sigurður Adolf Frederiksen var dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir hrottalegt morð á Smiðjuveginum í Kópavogi. Þar sló hann Jósef Liljendal Sigurðsson margsinnis í höfuðið með járnröri, stakk með skrúfjárni í maga og andlit og að endingu helti hann eldfimum efnum yfir fórnarlambið og kveikti í. „Ég sá rautt, tók járnrör og sló hann og síðan man ég litið eftir...
InnlentÍslenski kexkóngurinn sem keypti breskt fótboltalið17. ágúst 2021 Íslendingar tóku andköf, haustið 2006, þegar það spurðist út að Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, færi fyrir hópi fjárfesta sem vildi kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham. Þetta vakti gríðarlega athygli en Íslendingar höfðu áður komið við sögu í ensku knattspyrnunni þegar þeir keyptu Stoke City. En West HAm var miklu stærra mál. „Málið er á byrjunarreit,“ sagði Eggert við...
InnlentStjörnulögmaðurinn Villi Vill sviptur titlinum: „Notaði ég hluta af þessu efni í þeirri góðu trú“16. ágúst 2021 Stjörnulögmaðurinn Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson var sviptur kandídatstitli sínum við Lagadeild Háskóla Íslands í september 2001 fyrir ritstuld. Á sama tíma var afturkölluð sú einkunn sem hann fékk fyrir lokaritgerðina sem hann skirifaði við deildina. Ástæðan er sú að hann notaði efni frá öðrum í ritgerðina sína, án þess að geta þess með nokkrum hætti. Efnið sem Vilhjálmur notaði tilheyrði í...
InnlentÚlfar dreymdi um að myrða mann – Skaut ungan fjölskylduföður fjórum sinnum í hnakkann13. ágúst 2021 Í apríl árið 1976 fékk ungur maður á Akureyri löngun til að uppfylla gamlan draum. Draumur hans var að myrða mann. Hann braust inn í sportvöruverslun að kvöldi sunnudagsins 4. apríl og stal 22 kalibera Remington riffli og skotum. Eftir að hafa gjöreyðilagt búðina með að skjóta af rifflinum hélt hann á brott. Hann ætlaði að láta drauminn rætast. Um...
InnlentStórveldadraumar lögmannsins breyttust í martröð – Fjölmiðlasaga Sigurðar G.12. ágúst 2021 Fjölmiðlasaga Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns er æði skrautleg. Hann hefur staðið í rekstri nokkurra fyrirtækja sem sum hafa farið illa. Upphaf þess að lögmaðurinn lagði fyrir sig rfekstur fjölmiðla var að hann var um tíma forstjóri Norðurljósa, eiganda Stöðvar 2 og Bylgjunnar, sem þá voru í eigu Jóns Ólafssonar athafnamanns. Eftir að Jón Ásgeir Jóhannesson keypti fyrirtækið árið 2004 var...
InnlentMargir stóðu á öndinni yfir bláa karfanum – Sjómenn í Eyjum fengu þjóðarathygli en …10. ágúst 2021 Í febrúar árið 1995 upplýstu skipverjar á frystiskipinu Bylgju VE að þeir hefðu fengið bláan karfa í botnvörpuna í Skerjadýpi, út af Reykjanesi. Karfi er að öllu jöfnu rauður eins og flestir vita og því þótti þetta vera stórmerkilegt. Eftir að skipið kom til löndunar varð fjölmiðlafár í kringum karfann. Morgunblaðið sló þessum meintu stórtíðindum upp sem aðalfrétt á baksíðu....
InnlentPrófessorinn hlaut þrisvar dóm – Huldumaður bjargaði Hannesi Hólmsteini9. ágúst 2021 Nokkru áður en útvarpsrekstur var gefinn frjáls í landinu urðu hörkuátök þegar þeir Kjartan Gunnarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Eiríkur Ingólfsson, stóðu að rekstri útvarpsstöðvar undir merki Frjáls útvarps. Þetta gerðist á níunda áratugnum í verkfalli BSRB. Ríkisútvarpið var lamað og engar útsendingar þar. Aðstandendur útvarpsstöðvarinnar voru allir talsmenn frelsis og hugsjónamenn á því sviði og brautryðjendur. Þeir héldu stöðinni...
InnlentMikael Torfason greiddi skaðabætur vegna Harry Potter6. ágúst 2021 Lesendur DV supu hveljur að morgni 7. júní 2004. Stór forsíðutilvísun lýsti því að Harry Potter væri sprautufíkill og hefði fundist meðvitundarlaus eftir neyslu á heróíni. Reyndar var um að ræða leikarann sem lék Potter, Daniel Radcliffe, 14 ára, sem að sögn DV var fluttur á sjúkrahús. Mikael Torfason móðgaði aðdáendur Harry Potters. Á þessum tíma var DV á miklu...
InnlentGullfiskurinn smitaði eiganda sinn af fiskberklum- Sjómaður með hringorm4. ágúst 2021 Afar fátítt er að fólk smitist af sjúkdómum af gullfiskum sínum. Þetta er þó þekkt hér á landi. Árið 1995 komu upp tvö dæmi um berklasmit þar sem fólk hafði smitast af fiskum. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt gerðist hérlendis. Annað tilvikið varð þegar einstaklingur, sem óskaði nafnleyndar, smitaðist af gullfiski sínum. Sá vildi á þeim tíma ekki...