MannlífiðTrendin sem verða ríkjandi árið 20197. febrúar 2019 Litagleðin heldur áfram að ráða ríkjum innan heimilisins og munum við sjá bæði dekkri og dýpri tóna og á hinn bóginn koma hlýlegir og friðsælir jarðlitir til með að ná töluverðum vinsældum. Á árinu sem leið var fólk ansi duglegt að glæða heimili sín nýju lífi með hjálp málningarrúllunnar og þar verður svo sannarlega ekkert lát á! Við spáum því að fólk fari í meiri mæli að mála loftin í hressandi litum þegar líður á árið, en þetta mun breyta ásýnd og stemningu heimilanna umtalsvert – hvítt er svo sannarlega ekki heitasti veggliturinn lengur!
MannlífiðRisarnir í Basel2. febrúar 2019 Herzog & de Meuron – ein stærstu nöfnin í arkitektaheiminum í dag.
InnlentEkki annað plöntuklúður1. febrúar 2019 Dómnefnd sem hafði það hlutverk að velja sigurvegara í samkeppni um útilistaverk í hinu nýja Vogahverfi kynnti niðurstöður sínar í gær. Fyrir valinu varð tillaga hinnar þýsku Karin Sander og „gerir ráð fyrir að tveimur pálmatrjám sé komið fyrir í stórum turnlaga gróðurhúsum og að frá þeim stafi ljós og hlýja.“ Um var að ræða eina viðamestu samkeppni um útilistaverk...
Mannlífið„Vonlaust ef ég fékk ekki gagnrýni og bara hrós“31. janúar 2019 Við fengum að gægjast inn í vinnustofu grafíska hönnuðarins og teiknarans Sigríðar Rúnar sem er einna þekktust fyrir verkefnið „Líffærafræði leturs“.
MannlífiðKlassísk og hlýleg hönnun í Keflavík31. janúar 2019 Hús og Híbýli heimsóttu þau Viktoríu Hrund Kjartansdóttur og Brynjar Guðlaugsson í sumar í fallega nýuppgerða íbúð í Keflavík. Íbúðin er 95 fermetrar að stærð í húsi sem byggt var á áttunda áratugnum. Íbúðin samanstendur af tveimur rúmgóðum herbergjum, samliggjandi opnu eldhúsi og stofu auk baðherbergis.
MannlífiðSkandinavískur bóhemstíll heima hjá Linneu29. janúar 2019 Í hádeginu á rólegum og björtum miðvikudegi banka blaðamaður og ljósmyndari upp á í fallegu raðhúsi í Fossvoginum. Til dyra kemur hin glæsilega Linnea, en hér býr hún ásamt fótboltamanninum Gunnari Þór og börnum þeirra, þeim Þóru og tvíburunum Viðari og Elvari. „Ég er fegin að þið eruð örlítið sein, en ég náði að skjótast í sturtu á meðan!“ segir Linnea, nýböðuð og fersk.
MannlífiðHrátt og heillandi27. janúar 2019 Þorsteinn Eyfjörð Jónsson, eigandi Handverkshússins, og gullsmiðurinn Lovísa Halldórsdóttir Olesen búa í fallegu einbýlishúsi í Garðabænum ásamt börnum þeirra beggja og hundinum Myrru. Einbýlishús þeirra Þorsteins og Lovísu var byggt árið 1968 og eru rúmir 240 fm að stærð. Húsið er vel skipulagt á einni hæð og er rýmið töluvert opið og flæðir skemmtilega. Þau fluttu inn sumarið 2017 og...
MannlífiðOpen Source húsgagnahönnun: Betra fyrir umhverfið og budduna26. janúar 2019 Svokölluð opin hönnun verður sífellt meira áberandi.
MannlífiðLangar að ganga Jakobsveginn20. janúar 2019 Sólveig Baldursdóttir er myndlistamaður sem stundaði nám við skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1980-82. Ásamt því stundaði hún nám við myndhöggvaradeild Det Fynske Kunstakademi á árunum 1983-1988. Einnig starfaði hún í stúdíó Nicoli í Carrara frá 1990-1994 þar sem hún vann að eigin verkum. Í dag starfar Sólveig í DAM-teymi Hvítabandsins á geðsviði Landspítalans og sér þar um skapandi starf m.a. á leirverkstæði og í sköpun og tjáningu. Við spurðum Sólveigu hvað væri helst á óskalistanum hennar.
MannlífiðUmhverfismálin eiga að vera í fararbroddi20. janúar 2019 Batteríið Arkitektar er með stærstu arkitektastofum á Íslandi með vel menntaða og reynslumikla starfsmenn sem hafa tekið þátt í stórum og fjölbreyttum hönnunarverkefnum bæði innanlands og utan. Við báðum Sigurð Einarsson arkitekt, sem stofnaði fyrritækið árið 1988 ásamt Jóni Ólafi Ólafssyni og hefur starfað þar óslitið síðan, um að veita okkur innsýn inn í arkitektúr á Íslandi í dag og gefa okkur sýnishorn af verkum sem Batteríið arkitektar hafa hannað.
MannlífiðSjálfbær hönnun sem stenst tímans tönn16. janúar 2019 Danska hönnunarfyrirtækið Gejst var stofnað í Óðinsvéum í Danmörku árið 2013 af hönnuðunum Søren Nielsen og Niels Grubak Iversen. Ástríða fyrir endingargóðri hönnun var kveikjan að stofnun fyrirtækisins en fyrirtækið einsetur sér að hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Markmiðið var að skora á hefðbundna nálgun og hönnunaraðferðir og skapa vörur sem stæðust tímans tönn bæði hvað varðar hönnunina sjálfa og efnisval.
MannlífiðStærsta óskin að hafa heilsuna í lagi15. janúar 2019 Söngkonuna Siggu Beinteins þekkja allflestir Íslendingar og hefur hún heillað okkur með smellum eins og Eitt lag enn, Vertu ekki að plata mig og Allt eða ekkert. Við forvitnuðumst um hvað er að óskalista söngkonunnar.