Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Skandallinn sem skók KSÍ: „Ég hef engan áhuga á því að röfla við femínistana“

Árið 2005 var Pálmi Jónsson sagður hafa farið á strippstaðinn Rauðu Mylluna í Sviss og borgað þar fyrir kampavín sem kostaði 3,2 milljónir króna á þáverandi gengi og notað til þess greiðslu­kort KSÍ. Málið rataði þó ekki í fjölmiðla fyrr en árið 2009.

„Ég er algjör­lega saklaus, það er alveg á hreinu. Af minni hálfu fóru þessi viðskipti ekki fram heldur var kortið misnotað. Ég hef ekki verið að stunda svona staði, þekki ekkert hvað þar fer fram og drekk ekki einu sinni kampavín,“ sagði Pálmi Jónsson, þáverandi fjármála­stjóri Knattspyrnu­sambands Íslands, í samtali við DV árið 2009 um málið.

Geir Þorsteinsson, þáverandi formaður KSÍ, sagði að málið hefði verið afgreitt innan KSÍ og studdi sinn mann. Jafnframt hefði Pálmi greitt til baka þá fjárhæð sem fór út af kortinu í Sviss. Ýmsir vildu þó að Pálma yrði sagt upp störfum.

„Háttsemi þessa manns er ótæk og fyrir neðan allar hellur að viðkomandi hafi yfir höfuð farið inn á svona stað. Í okkar huga skiptir það engu máli hvaða greiðslu­kort voru notuð eða hvernig, að maður í þessari stöðu, á vegum íþrótta­hreyfingar, hafi farið inn á svona stað sem tengdur er glæpa­starfsemi er óboðlegt. Stjórnendurnir verða að axla ábyrgð og segja af sér,“ sagði Guðný Gústafs­dóttir, þáverandi talskona Feminista­félags Íslands, um málið í DV.

Pálmi gaf sjálfur lítið fyrir umræðuna sem myndaðist í kjölfarið og sagðist vera fjölskyldu­maður. „Þessi umræða er bara asnaleg. Mér finnst umræðan í minn garð hafa verið ósann­gjörn og hörð en ég er ekkert að væla yfir því. Vitandi það að ég er saklaus er ég mjög rólegur yfir þessu. Ég reyni að láta þetta ekki trufla mig en auðvitað gerir það það samt. Það er alltaf slæmt að verða fyrir svona slæmu umtali. Auðvitað hefur þetta líka tekið á konuna mína og börnin, þau eru að sjálfsögðu leið að fá svona árásir á pabba sinn.“ 

Svissneskir fjöl­miðlar fjölluðu um málið á sínum tíma að sögn DV og voru frásagnir þeirra á þá leið að Pálmi hefði vissulega verið sá einstaklingur sem notaði kortið, keypt kampavín og þá hafði hann sést í fylgd þriggja rússneskra kvenna. DV hafði einnig eftir ónefndum stjórnar­manni KSÍ að ferðir á strippstaði væru algengar innan knattspyrnu­hreyfingarinnar í kringum ráðstefnur.

„Hvort sem um er að ræða að maðurinn hafi notað kortið til að kaupa kampavín fyrir lægri upphæð, og það síðan straujað aftur, eða að hann hafi viljandi eða í vínæði eytt hærri upphæðum en hann kannski vildi gangast við. Hvort sem hann notaði kortið vinnu­veitanda síns meðvitað eða óvart. Mín persónu­lega skoðun er að fólk ætti að láta það ógert að kaupa manneskjur yfir höfuð, sama í hvaða tilgangi það er. Og ekki halda því fram að þetta sé bara vinnu­samningur,“ sagði Silja Bára Ómars­dóttir, kennari við Háskóla Íslands, á heimasíðu sinni árið 2009. Þarna er Silja að vísa í það að í mörgum tilfellum þegar fólk kaupir kampavín á strippstöðum að það sé í raun að kaupa vændi.

„Ég hef engan áhuga á því að röfla við femínistana, þær starfa bara svona og nýta greini­lega hvert tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri,“ sagði Pálmi um þá kröfu að hann ætti að segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni