Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Maður dæmdur í 16 ára fangelsi: „Það á enginn að þurfa að deyja á þennan hátt“

Maður lést eftir mikla höfuð­áverka 7. október 2007. Hinn ákærði, neitaði sök og bar við minnis­leysi sökum drykkju og lyfja­neyslu. Dómarar töldu sök ákærða óvéfengjanlega og var hann í kjölfarið dæmdur í 16 ára fangelsi af Héraðs­dómi Reykja­víkur þann 22. maí 2008.

Ákærði neitaði sök

Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi karlmann á fertugsaldri í 16 ára fangelsi fyrir að ráða nágranna sínum bana í íbúð hans að Hringbraut í fyrra. Banamaður hins látna var dæmdur til að greiða fjöl­skyldu hans hálfa milljón króna í skaða­bætur auk sakar­kostnaðar og málsvarnar­launa að fjárhæð samtals 2,3 milljónir króna.

Ákærði neitaði sök en að mati dómsins þótti sannað að hann hefði ráðið honum bana. Í aðdrag­anda verknaðarins höfðu mennirnir tveir komið inn í blokkina um hádegisbil hinn 7. október 2007. Sannað þótti að ákærði hefði þar slegið til hins látna a.m.k. þremur þungum höggum í höfuðið með slökkvitæki. Hvert og eitt högganna hefði getað valdið dauða og átti ákærði að vita það að mati dómsins. Ekki var upplýst hvers vegna hann sló hann. Taldi dómurinn skýringa helst að leita í annarlegu ástandi ákærða, þótt því yrði samt ekki slegið föstu. Átti ákærði sér engar málsbætur að mati dómsins.

Blóð fannst úr hinum látna á ákærða

Þegar lögreglu­menn komu á vettvang eftir verknaðinn tók ákærði á móti þeim og sagðist hafa komið að manninum liggjandi í blóði sínu. Sagðist hann ekki vita hver hefði veitt honum áverkana en hafði grun­semdir um annan íbúa í húsinu. Talaði lögreglan við þann aðila auk fleiri íbúa í húsinu en ekkert var grunsamlegt við þá. Á fingri ákærða var hins vegar nýtt sár og duft á handar­baki og töldu lögreglu­menn það hafa komið úr slökkvitækinu sem talið var líklegt árásar­vopn. Þá fannst blóð úr hinum látna á ákærða. Var hann hand­tekinn og settur í gæslu­varðhald.

Lá í rúminu með kodda fyrir andlitinu

Þegar myndir úr eftirlits­myndavélum við Nóatúns­verslun á Hringbraut voru skoðaðar sáust ákærði og hinn látni á þeim í verslunar­ferð og mátti ráða af myndunum að eitthvert ósætti hefði verið með mönnunum. Myndir í eftirlits­vélum við Hringbraut 121 sýndu mennina þá koma inn í blokkina og þar sást ákærði vera að slá til höndunum.

Kannaðist hann þó ekki við neitt ósætti milli sín og hins látna. Sagðist hann hafa haldið áfram að drekka með honum eftir að inn var komið þangað til hinn látni sofnaði. Sagðist ákærði þá hafa farið heim til sín en komið aftur nokkru síðar til að athuga hvort nágranni sinn væri vaknaður svo þeir gætu haldið áfram að drekka. Hefði hann þá komið að honum liggjandi í rúmi sínu með kodda fyrir andliti og hefði hann frussað á sig blóði. Upplýst var að ákærði hafði drukkið nokkra daga fyrir verknaðinn og tekið mikið af lyfjum. Sagðist hann því ekki muna vel eftir atvikum.

Ákærði á að baki sakaferil frá árinu 1998 vegna auðgunar­brota og hefur hann hlotið sex refsidóma. Málið dæmdu héraðs­dómararnir Guðjón St. Marteinsson, Helgi I. Jónsson og Jón Finnbjörnsson. Verjandi var Hilmar Ingimundarson hrl. og sækjandi Ragn­heiður Harðar­dóttir vara­ríkis­saksóknari.

Háþróuð tækni notuð við vettvangsrannsókn

Stöð 2 sýndi í þættinum Ummerki vettvangs­rannsókn í tengslum við morðið. Beitt var háþróaðri tækni við skoðun blóðferla á vettvangi en blóð­blettir þóttu segja aðra sögu en hinn grunaði í málinu. Þannig sýndu lögun blóð­bletta að þeir höfðu komið til við högg en ákærði hélt því fram að félagi hans hefði hóstað blóði. Þá greindust örlitlir blóð­blettir á úlpu ákærða sem varð til að varpa á hann sterkum grun en blóðið var úr hinum látna. Upptökur úr eftirlits­myndavél við verslun í nágrenninu sýndu enn fremur að ákærði og hinn látni höfðu rifist rétt fyrir morðið.

Hafði breytt heimilinu í greni

Ákærði hringdi í lögreglu sunnu­daginn 7. október og greindi frá því að hinn látni lægi meðvitundar­laus og blóðugur á heimili sínu að Hringbraut. Ákærði var nágranni hans í fjölbýlis­húsinu. Er lögregla kom á vettvang var hann látinn en koddi var yfir höfði hans. Hann hafði fengið þung á höfuð og duft­leifar úr slökkvitæki voru framan í honum. Slökkvitækið var á gólfinu og blóð úr hinum látna var á því.

„Íbúðin sem hinn látni bjó í er í eigu Félags­bústaða Reykja­víkurborgar. Eftir ítrekaðar kvartanir nágranna kröfðust Félags­bústaðir þess að hinn látni yrði borinn út. Málið fór fyrir dómstóla og kvað héraðs­dómari upp úr að hinn látni skyldi áfram vera í íbúðinni vegna þess að hann hefði aðeins fengið eina formlega viðvörun. Samkvæmt leigu­samningi þurfti hins vegar tvær.

Georg Viðar Björnsson, húsvörður í húsinu á Hringbraut, sagði í viðtali í septemberlok 2007 að hinn látni hefði breytt heimili sínu í nokkurs konar greni.

„Það er hálfur bærinn á eftir honum og fólk kemur til hans bæði dag og nótt. Ef hann er ekki heima fer það bara inn um svala­dyrnar,“ sagði Georg Viðar. Nágrönnum stóð stuggur af hegðun hins látna, en hann og gestir hans skildu eftir sig sprautur og nálar í húsinu.“

Reyndi að koma sök á nágranna

Þegar ákærði var spurður út í áverkana á hinum látna á vettvangi sagðist hann ekki hafa veitt honum þá en sagðist hafa konu sem bjó í húsinu grunaða. Eftir að lögregla hafði rætt við konuna var ekki talin ástæða til að gruna hana um ódæðið.

Niður­staða dómstóla var að ákærði væri sakhæfur. Morð­tilefni kom hins vegar aldrei fram og er hulið um hvað félagarnir tveir deildu. Ákærði bar við óminni fyrir atburðum.

Í dómi Hæstaréttar í málinu árið 2008 er það reifað svo:

Bana­maðurinn var ákærður fyrir manndráp með því að hafa sunnu­daginn 7. október 2007, veist að hinum látna á heimili hans og slegið hann minnst þremur þungum höggum í höfuðið með slökkvitæki, með þeim afleiðingum að höfuðkúpa brotnaði á þremur stöðum. Hann fékk mikla heila­blæðingu sem dró hann til dauða að kvöldi. Ákærði neitaði sök.

Enginn á að þurfa að deyja á þennan hátt

Í dómi héraðs­dóms, sem stað­festur var í Hæstarétti, sagði að sannað væri að hinn ákærði hefði á þeim tíma sem hér um ræðir verið að langmestu leyti í óminnis­ástandi og því væri ekki byggjandi á reikulum framburði hans. Með vísan til blóð­bletta á fatnaði ákærða, blóðs úr hins látna á slökkvitækinu, tækni­rannsóknar lögreglu og til vitnis­burðar nánar tilgreindra vitna, var talið sannað að ákærði hefði slegið að minnsta kosti þremur þungum höggum í höfuðið með slökkvitækinu sem sannað var með áliti réttar­meina­fræðings að hefði leitt hann til dauða.

Þá var talið að ákærði hefði ekki geta dulist að höfuð­höggin myndu leiða til dauða. Var ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 211. gr. almennra hegningar­laga nr. 19/1940 og hann dæmdur til 16 ára fangelsis­vistar. Fallist var á skaða­bótakröfu systkina hins látna að fjárhæð 504.733 krónur, en hún var reist á reikningum sem tengdust sakarefni málsins.

Auk þess var hann dæmdur til að greiða systkinum hins látna hálfa milljón króna í skaðaætur. Lögmaður ákærða sagði eftir að dómurinn var kveðinn upp að tekin yrði ákvörðun síðar um það hvort málinu yrði áfrýjað. Til þess hefur ákærði fjórar vikur.

Systir hins látna, sagði: „það á enginn að þurfa að deyja á þennan hátt, hvorki hann né aðrir.“

Heimildir:

Ágúst Borgþór Sverrisson. 14. desember 2020. Tímavélin: Slökkvitækis­morðið á Hringbraut – Blóð­blettirnir sögðu söguna. DV.

Innlendar fréttir. 23. maí 2008. Hlaut 16 ára fangelsi fyrir manndráp við Hringbraut: Sló nágranna sinn þremur þungum höggum með slökkvitæki en neitaði ákærunni. MBL.

Innlent. 22. maí 2008. Sextán ára fangelsi fyrir manndráp við Hringbraut. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá