Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ógnað af byssumanni fyrir framan skrifstofur Sósíalistaflokksins

Síðastliðið föstudags­kvöld var Agnieszku Sokolowska ógnað af byssu­manni fyrir framan skrif­stofur Sósíalista­flokks Íslands í Reykjavík. Maðurinn var ágengur og spurði Agniezku ítrekaðra spurninga á meðan hann státaði sig af vopninu. Víkinga­sveitin mætti á svæðið og handsamaði manninn. Agniezka deildi reynslu sinni og atvikinu á fésbókar­síðu sinni. Færslan hefur verið þýdd:

Hið furðulegasta atvik henti mig: Það er snemma að föstudags­kvöldi og ég stend fyrir framan skrif­stofur Sósíalista­flokks Íslands þegar óþekktur gaur nálgast mig með byssu í hendinni. Hann bendir á merki flokksins á glugganum og spyr mig hvort ég sé að bíða eftir að komast inn. Svo spyr hann mig hvort það sé ég sem hafi prentað lógóið, í þeirri andrá sem ég ætla að svara honum otar hann byssunni að mér og stærir sig af því að hann hafi í raun þrívíddar­prentað hana út og hann gefur mér meira að segja kaliber byssunnar. Síðan heldur hann áfram og spyr mig hvaðan ég sé og þegar ég svara honum segist hann hafa áttað sig á því. Því næst hann spyr mig hvort ég eigi sígarettu.

Á þessum tíma­punkti byrja ég að ganga í átt að bílnum mínum. Ég tek kannski fimm skref þegar ég heyri ískrandi bremsu­hljóð. Ég sný mér við og sé bíl víkinga­sveitarinnar stoppa fyrir framan manninn. Hann sleppir byssunni og stígur frá henni. Einn lögreglu­mannanna grípur hann og hand­járnar á meðan annar fjarlægir byssunni af jörðinni. Á sama augna­bliki kemur venju­legur lögreglu­bíll með tveimur lögreglu­mönnum í. Þeir leiða handsamaða gæjann í lögreglu­bílinn og báðar bifreið­arnar hverfa af vettvangi. Enginn þeirra virðir mig viðlits. Ég reyni að átta mig. Eftir­fylgni: Byssan reyndist vera leikfang, gaurinn er dópisti, einn af góðkunningjum lögreglunar og það voru starfs­menn hótelsins í nágrenninu sem létu lögregluna vita eftir að hafa séð vopnaðan einstakling valsa um. Bara venju­legur föstu­dagur í Reykjavík.

Agnieszka Sokolowska er félagi Í Sós­í­alista­flokki Íslands
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning