Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Þetta fyrirkomulag getur ógnað þjóðaröryggi“

Oddný Harðardóttir.
Oddný Harð­ar­dóttir. Mynd: Vilhjálmur Þór Guðmundsson

Oddný G. Harðar­dóttir þingmaður Samfylkingarinnar veltir því fyrir sér hvers vegna notkun greiðslu­korta og greiðslu­miðlunar hér á landi sé margfalt dýrari en í nágrannaríkj­unum, í grein er hún hefur ritað:

„Það er vegna þess að við erum háð erlendum aðilum,“ skrifar hún og heldur áfram:

„Heimildar­gjöf og uppgjör innlendra debet­korta fer fram erlendis. Íslenskir neytendur eru ekki bara að greiða til íslenskra banka heldur borga þeir einnig til Visa og Mastercard í útlöndum. Hagnaður bankanna af þessu fyrir­komulagi hleypur á milljörðum en er okkur neytendum mjög kostnaðar­samt því allir milli­liðir vilja sitt á öllum stöðum. Við borgum og getum ekki annað.“

Segir einnig að „við bætist að þetta fyrir­komulag getur ógnað þjóðar­öryggi líkt og Már Guðmundsson, þá seðla­bankastjóri, benti á árið 2019 með bréfi til Þjóðar­öryggisráðs. Fjármála­stöðugleika­nefnd áréttaði í yfir­lýsingu sinni 28. september síðastliðinn mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslu­miðlun til að tryggja rekstrar­samfellu og vísaði þar meðal annars til vaxandi netógnar.“

Oddný telur að „við þurfum sjálf­stæðar og óháðar greiðslu­lausnir. Lausnir sem eru bæði ódýrari en þær sem við búum við og öruggari. Krafan ætti að vera sú að ávallt séu til staðar virkar lausnir sem lúta í einu og öllu íslenskri löggjöf um eignar­hald, umráða- og notkunar­rétt og eru algjör­lega óháðar inngripum erlendra aðila sem gætu ógnað innlendri greiðslu­miðlun og fjármála­stöðugleika. Það þarf að auka samfélags­legan ábata og tryggja þjóðar­öryggi.“

Bætir við:

„Við í Samfylkingunni vildum ekki selja hluti ríkisins í bönkunum fyrr en fram­tíðarsýn hefði verið rædd meðal almennings um það hvernig banka­kerfi þjónaði hagsmunum okkar best. Svara þyrfti þeirri spurningu hvernig banka­kerfi tryggi góða og trausta þjónustu við fólk og fyrirtæki með fjöl­breytni, samkeppni, öflugu eftirliti, neytenda­vernd og öruggri, ódýrri, innlendri greiðslu­miðlun.“

Hún nefnir að endingu að „ríkis­stjórnin og stjórnar­flokkarnir vildu selja sem mest strax og hirtu ekki um að gera þyrfti breytingar á kerfinu til að tryggja hagsmuni almennings. Stjórn­völd og Seðla­banki Íslands þurfa að girða sig í brók og tryggja óháða sjálf­stæða fjármála­innviði, óháðar og ódýrar innlendar greiðslu­lausnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning