Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hnífsstunga í læri afbrýðisams unglings varð til að upplýsa stórmál: Þjófabæli í Stangarholti

Húsið á myndinni tengist fréttinni ekki beint
Húsið á mynd­inni teng­ist frétt­inni ekki beint

Þegar lögreglan mætti á vettvang í Stangar­holti kom á daginn að framinn hafði verið glæpur. Hópur ungmenna var saman­kominn í íbúðinni. Ungur maður hafði verið stunginn í lærið með eggvopni, að talið var. Annað átti eftir að koma á daginn en hnífsstungu­málið átti þó eftir að draga á eftir sér dilk.

Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu barst tilkynning vegna hávaða og ónæðis frá kjallara­íbúð í Stangar­holti. Atvikið átti sér stað um sexleytið sunnudags­morguninn, 5. mars 1995.

Fram kemur í frétt Morgun­blaðsins, 7. mars 1995: „Þar var fyrir fjöldi ungs fólks þegar lögreglan kom á staðinn, og hafði einn piltur verið stunginn með hníf í læri. Hann var fluttur á slysa­deild en áverkinn er talinn minni­háttar, og leikur grunur á að hann hafi veitt sér hann sjálfur.“  Reyndist pilturinn hafa verið í afbrýðissemis­kasti og veitt sjálfum sér sárið.

Hávaðinn frá samkvæminu og öskur gestanna eftir að pilturinn stakk sig urðu þess valdandi að lögreglan komst á sporið á stórri og viða­mikilli glæpa­starfsemi sem herjað hafði á borgarbúa vikurnar áður. Óhætt er að segja að viðkomandi hafi skotið sjálfan sig í fótinn með sjálfs­skaðanum.

Afhjúpun skipulagðrar glæpastarfsemi

Lögreglan fékk húsleitar­heimild og við leitina kom í ljós gríðarleg magn þýfis að verðmæti fleiri milljóna króna. Við yfirheyrslu kom í ljós að þýfið sem fannst í íbúðinni tengdist fjölda innbrota sem tilkynnt höfðu verið í höfuð­borginni á undan­förnum dögum og vikum.

Þá segir í fyrr­greindri frétt Morgun­blaðsins: „Lögreglan fékk húsleitar­heimild og fann í íbúðinni fjölda símtækja, tölvur, reiðtygi, sjónvarps­tæki, örbylgjuofn og fleiri muni sem lögreglan telur að sé þýfi úr innbrotum að undan­förnu, og var aðkoman svipuð og „í skranbúð“ að sögn lögreglu.“

Átta handteknir

Fimm drengir og þrjár stúlkur á sextánda aldursári voru flutt til yfirheyrslu hjá rannsókna­lögreglu ríksins.

Í frétt DV 6. mars sama ár kemur fram að einhverjir samkvæmis­gestanna voru meðlimir í glæpa­gengi: „Reyndust sumir samkvæmis­gesta vera meðlimir í alræmdu þjófa­gengi, að sögn lögreglu. Flutti lögreglan átta manns, fimm drengi og þrjár stúlkur, í fanga­geymslur. Þau eru öll um tvítugt. Stúlkunum og tveimur drengjum var sleppt fljótlega en þrír drengir voru færðir til yfirheyrslu hjá RLR.“

Leigendur kjallaraíbúðarinnar í gæsluvarðhald

Óskað var eftir því að íbúum kjallara­íbúðarinnar að Stangar­holti yrði gert að sæta tíu daga í gæslu­varðhaldi. Ekki var talið að þeir tilheyrðu glæpa­genginu en sem íbúar taldist það víst að þeir bæru ábyrgð á þýfinu. Annar íbúanna var sá sem stakk sjálfan sig í lærið. Í frétt Morgun­blaðsins sagði: „Eftir frum­yfirheyrslur sleppti RLR einum drengjanna en fór fram á 10 daga gæslu­varðhald hjá Héraðs­dómi Reykja­víkur yfir hinum tveimur síðdegis í gær. Þeir tilheyra ekki þjófa­genginu og eiga óverulega afbrota­sögu að baki. Þeir eru leigjendur íbúðarinnar við Stangar­holt þar sem þýfið fannst. Annar drengjanna er sá sem stakk sig í lærið. Héraðs­dómari úrskurðaði drengina tvo i gæslu­varðhald til 13. mars.“

Þá kemur jafnframt fram í frétt Morgun­blaðsins að mennirnir tveir höfðu ekki alls kostar sáttir við niður­stöðu Héraðs­dóms og mátti rannsóknar­lögregla ríkisins þess vegna óska eftir aðstoð lögreglunnar í Reykjavík: „Þegar því lauk þurfti RLR að kalla lögregluna í Reykjavík sér til aðstoðar við að flytja drengina frá Héraðs­dómi í Síðu­múla­fangelsið þar sem þeir gerðu sig líklega til mótspymu. Ekki kom til stórátaka og gekk flutningurinn i Síðumúla án teljandi vandræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning