Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Eina gaypride gangan sem ég hef farið í var á Litla-Hrauni“

„Eina gaypride gangan sem ég hef farið í var á Litla-Hrauni eitt árið þegar nokkrir fangar tóku sig saman og voru með bæði íslenskan- og Regnboga­fánann, og gengu „hringinn“ á bak við húsið. Það var sérstakt og örugglega einstakt á heimsvísu.“

Þetta skrifar Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu en hann sat í fangelsi í sextán ár fyrir fíkniefna­smygl. Líklega eru fáir afbrota­menn á Íslandi sem hafa snúið lífi sínu jafn vel við og Guðmundur. Í dag vinnur hann hjá Velferðar­svið Reykja­víkurborgar og segist sérstak­lega heppinn með yfirmenn.

„Einn af yfir­mönnum mínum á Velferðar­svið Reykja­víkurborgar hringdi í mig í dag í smá uppnámi og sagðist hafa tekið eftir því að ég væri að vinna um helgina og það væri gaypride. Hún vinnur aðeins á virkum dögum og spurði hvort hún ætti ekki að taka vaktirnar mínar svo ég gæti skemmt mér um helgina á gaypride.  Ég var yfir mig ánægður með hugulsemina! Minn vinnu­staður er í fara­broddi í stuðningi við hinsegin­fólk og minnihluta­hópa almennt,“ skrifar Guðmundur á Facebook.

Hann segist tilhugalíf samkyn­hneigðra hafa tekið stakka­skiptum meðan hann sat inni. „Ég sagði henni að hafa ekki áhyggjur af mér. Ég væri búinn að vera hinseginn svo lengi að á þeim tíma þegar maður vildi kynnast öðrum manni hefði maður þurft að auglýsa í einkamála­dálki Morgun­blaðsins og láta áhugasama senda raun­verulegt bréf með bréfpósti merkt xxxxx til Morgun­blaðsins,“ segir Guðmundur.

Þetta hafi allt breyst til hins betra. „Gay lífið á Íslandi hefur breyst svo mikið í gegnum tíðina – til hins betra – og má það þakka fjölda fólks og samtaka, en alls ekki mér enda hef ég bara verið á Spáni eða í fangelsi á meðan þetta hefur verið að þróast,“ segir Guðmundur.

„Ég stefni samt á að taka meiri þátt í fram­tíðinni og hver veit nema ég verði í göngunni á næsta ári, í þröngum glimmer­galla. Allavega, ég sé um að vera fulltrúi hinsegins fólks hjá Velferðar­svið Reykja­víkurborgar á vakt um helgina – á meðan aðrir skemmta sér. Gleðilegt Pride elsku Ísland.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið