Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ung kona kramdist undir fataskáp: „Hvíldu í friði fallega stelpa“

Chloe Haynes
Chloe Haynes

Tuttugu og eins árs kona fannst látin á hótel­herbergi í Liverpool þann 10 september síðastliðinn. Talið er að skápur hafi fallið á hana og ollið dauða hennar. Móðir hennar skrifaði færslu á samfélags­miðli þar sem hún minnist dóttur sinnar.

Chloe Haynes fannst látin inni á hótel­herbergi í hinu fræga Adelphi hóteli í Liverpool um klukkan 6:37 þann 10 september síðastliðinn. Virðist sem stór og þungur fata­skápur sem ekki var festur við vegginn, hafi fallið á hana og kramið til bana. Móðir Chloe, hin 49 ára Nicola Williams sagði í færslu á samfélags­miðli að hún væri staðráðin í að vita öll smáatriði málsins.

Mæðgurnar

Chloe, sem átti tvíbura­bróður og þrjú önnur systkini, ferðaðist til Bítla­borgarinnar frá Hafan y Mor Haven Holiday Park í Phllheli í norður Wales, þar sem hún vann en planið var að fara út og sletta úr klaufunum. Deildi hún hótel­herbergi með vinnu­félaga sínum en það var einmitt hann sem kom að líki hennar.

Móðirin sagði að dóttir hennar hafi farið frá Pwllheli um klukkan 19:40 og á Adelphi hótelið til að fara í trúlofunar­veislu. „Um miðnætti hafði hún verið búin að drekka skot og fleira og var orðin nokkuð slompuð, þannig að vinur hennar fór með hana upp á hótel­herbergi svo hún gæti farið að sofa, áður en hann snéri svo aftur í veisluna. Svo virðist sem hún hafi vaknað og staðið upp og verið ringluð, ekki áttað sig á því hvar hún væri og að hún hafi opnað skápa­hurðina, haldandi að þetta væri baðherbergis­hurðin eða aðal­dyrnar. Þetta var stór, gamall og þungur fata­skápur og hann féll á hana og krambi barkann á henni.“

Sagði móðirin að vinur Chloe hafi snúið til bara snemma um morguninn og hafi þá séð þessa hrotta­legu sýn. Hann hafi öskrað eftir hjálp og að tveir menn úr nærliggjandi herbergjum hafi komið og lyft skápnum af henni en það hafi verið um seinan.

Mennirnir þrír voru í byrjun yfir­heyrðir af lögreglu en svo sleppt án ákæru. Lögreglan hefur staðfest að litið sé á andlátið sem slys.

Við­bragðs­að­ilar við hót­elið

Samúðar­kveðjum og virðinga­vottum hefur flætt yfir samfélags­miðlana þar sem einn vinur hennar segir til að mynda: „Hvíldu í friði fallega stelpa“ og annar sagðist: „Algjör­lega hrygg­brotin.“

Móðirin minnist dóttur sinnar einnig: „Hún elskaði dýr, hún átti lítinn hund sem hún kallaði Archie en hún dýrkaði hann. Það eru til svo margar ljós­myndir af þeim saman. Ég kallaði hana alltaf fugl (e. birdy). Hún var svo smágerð og lítil og hún var eins og lítill fugl þegar hún borðaði. Hún var þögul, ein af þeim sem talaði ekki nema þegar ástæða var til. En síðustu 12 mánuði hafði hún verið farin að koma út úr skelinni, var farin að fá sjálfs­traust og átti stóran vinahóp. Hún var góð og umhyggjusöm og hún virtist ná góðri tengingu við samkyn­hneigða menn en það var einmitt þess vegna sem hún hitti vin sinn sem hún fór til Liverpool með.“

Sagði hún að dóttir sín hefði verið að safna fyrir bílprófi og utan­landsferð. „Hhún var að plana að taka bílpróf og var búin að safna smá pening fyrir því og svo langaði hana að fara til útlanda í frí með vinum sínum. Hún var bara að gera allt það sem 21 árs myndi gera.“

Mirror fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“