Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Beiðni Auggie Duffy um áfrýjun til Hæstaréttar hafnað: „Þetta er auðvitað mikill léttir“

Lögmaðurinn er hæstaréttarlögmaður
Lög­mað­ur­inn er hæsta­rétt­ar­lög­maður

Beiðni manns, sem Lands­réttur sakfelldi fyrir nauðgun í febrúar síðastliðnum, um að áfrýja málinu til Hæstaréttar, hefur nú verið hafnað. Dómur Lands­réttar, sem hljóðar upp á tveggja og hálfs árs fangelsis­vist, stendur því. Enn er óvíst hvenær maðurinn hefur afplánun dómsins.

Maðurinn sem um ræðir heitir Augustin Dufatanye en er betur þekktur undir nafninu Auggie Duffy. Brotið var framið í mars árið 2019 en fjallað er ítarlega um málið í nýjasta tímariti Mannlífs. Þar er einnig rætt við brotaþolann, konu sem lýsir nóttinni hrikalegu þegar stjórnin var tekin af henni, þriggja ára baráttu í gegnum réttar­kerfið og loks bið og óvissu á meðan maðurinn sem braut á henni gengur enn laus. Konan gat enga björg sér veitt nóttina sem brotið var framið, sökum svefn­drunga og ölvunar­ástands.

„Mér var tjáð að þessu væri lokið“

Auggie Duffy áfrýjaði sakfellingar­dómi Héraðs­dóms yfir honum en Lands­réttur staðfesti dóminn. Þá sendi hann inn beiðni um áfrýjun dóms Lands­réttar til Hæstaréttar í apríl síðastliðnum.

„Ég komst að því nýlega fyrir slysni að maðurinn væri ekki enn kominn í fangelsi, vegna þess að hann hefði áfrýjað dómnum til Hæstaréttar,“ segir konan í samtali við Mannlíf.

„Þetta var mikið áfall; ég átti ekki von á þessu þar sem mér var tjáð að þessu væri lokið, eftir dóminn í Lands­rétti.“

Konan segist hafa eytt síðustu vikum í að endurræsa vefsíðu Hæstaréttar til að sjá hvort búið væri að úrskurða hvort beiðni Auggie Duffy um áfrýjun hefði verið samþykkt. „Í gær kom loks úrskurðurinn. Beiðninni var hafnað,“ segir hún. „Þetta eru ekki upplýsingar sem ég fékk frá yfir­völdum, heldur þurfti ég að leita eftir þeim sjálf.“

Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

Gæti seinkað afplánun

Bið brotaþola ætti því fljótlega að vera á enda. Fangelsis­mála­stofnun hefur nú fjórar vikur til þess að boða Auggie Duffy í afplánun. Þegar hann fær boðunina getur hann þó sótt um frest vegna persónulegra mála, sem þannig getur seinkað afplánun enn frekar, eða um þrjá mánuði. Fresturinn er til að mynda hugsaður fyrir fjölskyldu­fólk til þess að það hafi nægan tíma til ráðstafana. Mögu­leikinn er þrátt fyrir það opinn öllum.

„Þetta er auðvitað mikill léttir og ég upplifi þetta sem ákveðin endalok, þar sem ég veit núna að ég mun ekki þurfa að fara í réttarhöld í þriðja sinn. Mér líður hins vegar enn ekki eins og ég sé örugg – hann er ekki kominn í fangelsi.“

Engar hömlur á ferðum hans

Konan hefur áður í samtali við Mannlíf lýst miklum ótta í tengslum við að maðurinn sem braut á henni gangi laus. Hún hafi til að mynda séð hann fyrir utan vinnustað hennar, sem hafi vakið hjá henni sterk einkenni áfalla­streitu. Hún hafi ekki þorað út af vinnu­staðnum lengi á eftir.

„Það gætu enn verið fjórir mánuðir þar til hann er kominn í fangelsi. Á meðan hann bíður eru engar hömlur á ferðum hans – hann er frjáls á meðan.“

Auggie Duffy hefur ávallt neitað sök og ekki sýnt iðrun fyrir dómi. Gögn úr eftirlits­myndavélum, fram­burður vitna og gögn úr snjall­tækjum þóttu ýta undir trúverðug­leika konunnar en draga úr trúverðug­leika hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá