Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Geimfarinn Kathy Sullivan hlaut Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar 2022

Kathy Sullivan á leið niður í djúpið.
Kathy Sullivan á leið niður í djúpið.

Land­könnunar­verðlaun Leifs Eiríks­sonar 2022 voru veitt á dögunum á Húsavík. Var það ameríski geim­farinn Kathy Sullivan sem þau hlaut.

Fram kemur á frétta­vefnum 640.is að Könnunar­safnið á Húsavík veiti verð­launin á hverju ári en þetta er í sjötta sinn sem þau eru afhent fyrir afrek í land­könnun og vísinda­starfi.

Kathy Sullivan er mikill Íslands­vinur en hún er þekktur geimfari í Banda­ríkjunum. Á hún á baki þrjú geimflug og hefur hún ferðast 356 sinnum í kringum jörðina eða tæplega 14 milljón kílómetra í geimnum.

Segir á 640.is að Sullivan hafi verið í áhöfn geim­skutlunar Discovery sem kom Hubble sjón­aukanum á braut um jörðu árið 1990. Geim­skutlan setti aukreitis hæðamet með því að fljúga 621 kílómetra hæð yfir jörðu. Þá varð hún fyrst kvenna til að kafa niður í Challenger-dýpið í Maríanadjúpál, sem er dýpsti partur hafsins, um 11 kílómetra undir sjávar­máli. Sullivan er einnig fyrsta manneskjan í heiminum til að fara bæði niður í Challenger-dýpið og í geimgöngu. Hefur engin kona kannað staði með meiri hæðarmund eða samtals 632 kílómetra.Barack Obama, þáverandi Bandaríkja­forseti, skipaði Sullivan árið 2013 sem forstjóra NOAA, hafrannsókna- og loftslags­stofnunar Banda­ríkjanna. Er hún jarð­fræðingur að mennt en hún hefur heimsótt Ísland við mörg tækifæri og á það til að grípa í veiðistöngina og veiða lax hér við land.

Þá hlaut Belén Garcia Ovide einnig verðlaun safnsins en hún er stofnandi og forstöðu­kona Ocean Missions á Húsavík en samtök hennar vinna að verndun hafsvæða og kort­lagningu á plastmengur í höfum og við strendur Íslands.

Belén Garcia Ovide í leið­angri Ocean Missions.

Þá hlutu einnig eftir­farandi land­könnuðir sérstök verðlaun safnins:Will Steger og J.R. Harris frá Banda­ríkjunum, Dominique Gonçalves frá Mósambík, og Geoff Green frá Kanada.

Formaður dómnefndar var Jeff Blumenfeld, deildar­forseti hjá The Explorers Club í Banda­ríkjunum.

Hægt er að lesa um alla verðlauna­hafana á vefsíðu safnsins hér:

https://www.explorationmuseum.com/awards/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp