Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Segir fráleitt að Ísidór hafi verið að undirbúa hryðjuverk: „Þetta mál er hvorki fugl né fiskur“

Einar Oddur Sigurðsson lögmaður er verjandi Ísidórs Nathans­sonar, sem ásamt Sindra Snæ Birgis­syni, situr nú í gæslu­varðhaldi vegna rann­sóknar lögreglu á vopna­lagabroti og meintum áformum um hryðju­verk.

Hann segir – í grein á dv.is – að málið sé skjólstæðingi hans afar erfitt:

„Þetta yfirbragð sem málið hefur tekið á sig hefur komið mjög illa við hann og þeim sem honum tengjast, dvölin í gæslu­varðhaldi er alltaf erfið og málið mjög þungbært fyrir hann og hans aðstand­endur.“

Einar Oddur Sig­urðs­son.

Einar er á sama máli og verjandi Sindra Snæs, Sveinn Andri Sveinsson, að lögreglan hafi alls ekki getað sýnt fram á með óyggjandi hætti að ungu mennirnir tveir hafi verið að undirbúa hryðju­verk; þrátt fyrir afar galgobalegt tal þeirra á spjall­forriti um slík áform.

„Þetta mál er hvorki fugl né fiskur – snýst um tiltekin samskipti og hvaða túlkun eigi að leggja í þau, ég er sammála þeim röddum sem sagt hafa lögregluna fara offari í þessu máli og þá sérstak­lega í tengslum við þessa blaðamanna­fundi sem haldnir voru í upphafi,“ segir Einar og bætir við að efnis­atriði rann­sóknarinnar sem lekið hafi verið til fjölmiðla hafi verið skjólstæðingi hans afar þungbær; nefnd hafa verið ýmis hræðileg meint áform drengjanna um hryðju­verk, sem verjendur þeirra, Sveinn Andri og Einar, hafna alfarið að hafi verið í undir­búningi:

„Ef þessi heim­færsla á að ganga upp þá þarf að sýna fram á einhvers konar undir­búnings­athafnir eða að ásetningur hafi verið sýndur í verki.“

Einar segir það algjör­lega fráleitt að Ísidór hafi verið að undirbúa hryðju­verk á Íslandi:

„Ég hafna því algjör­lega. Það eru ýmsar ávirðingar uppi sem ekki er hægt að segja að eigi við nein rök að styðjast en vopna­lagabrotin eru kannski frekar borð­liggjandi,“ segir hann; en komið hefur fram að þeir félagar Sindri Snær og Ísidór séu sakaðir um að hafa verið að búa til stór­hættuleg skotvopn með þrívíddar­prentara.

„Almennt séð er ekki til bóta að reka mál í fjöl­miðlum en fyrst umfjöllunin fór af stað og málið var lagt upp með þessum hætti þá eru verjendur nauð­beygðir til að bera hönd fyrir höfuð skjólstæðinga sinna.“

Sindri Snær og Ísidór hafa setið í gæslu­varðhaldi síðan 21. september; rennur gæslu­varðhalds­úrskurður yfir þeim út þann 10. nóvember næst­komandi.

Staðan á Íslandi er sú að ekki er hægt að halda sakborningum lengur í gæslu­varðhaldi en í þrjá mánuði án þess að leggja fram kæru gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning