Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Óviðeigandi Víkingar í vandræðum: „Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender“

Eftirlits­maður KSÍ á bikar­úrslitaleik karla á milli Víkings og FH, Frosti Viðar Gunnarsson,  skrifaði í skýrslu sína eftir leikinn um níðsöngva sem aðdáendur Víkinga sungu um þáverandi þjálfara FH, Eið Smára Guðjohnsen, og núverandi leikmann FH, Eggert Gunnþór Jónsson.

Kemur fram að úrskurður aga- og úrskurðar­nefndar frá 12. október þessamánaðar um heima­leikjabann Víkinga er fellt úr gildi; sekt Víkinga – sem nemur 200.000 krónum stendur var ekki felld niður.

Leikurinn, sem endaði með sigri Víkinga eftir fram­lengingu, fór fram þann 1. október síðastliðinn á Laugar­dalsvelli.

Tveimur dögum síðar barst áðurnefnd skýrsla frá eftirlits­manni KSÍ til aga- og úrskurðar­nefndar KSÍ.

Athyglis­vert er að skoða í skýrslunni atvik er varða stuðnings­menn Víkings; og er lýst með þessum hætti:

„[…]Stuðnings­menn Víkinga voru aftur á móti með mun alvarlegri hegðun. Þá er ég hér að vísa til þess hóps sem var fremst í stúkunni, við grind­verkið. Þeir kveiktu allavega í þrígang á blysum. Í fyrsta skiptið eftir að þeir skoruðu sitt fyrsta mark á mín 26. Einnig eftir annað mark sitt á mín 89. Og svo í þriðja skiptið að leik loknum. Nokkuð var um níðsöngva gagnvart leik­mönnum og þjálfara FH sem voru særandi og með öllu óásættanlegir,“ segir í skýrslu Frosta:

Eggert Gunnþór Jónsson.

„Það sem ég heyrði varðandi söngvana var:

„Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender.“

Eiður Smári hefur viðurkennt áfengis­vandamál sitt og hefur stigið til hliðar sem þjálfari FH. Eggert Gunnþór er leikmaður númer 6 hjá FH – hann var á síðasta ári ákærður fyrir naugðun ásamt lands­liðs­manninum Aroni Einari Gunnars­syni.

Var málið fellt niður bæði hjá héraðs og ríkis­saksóknara.

Í skýrslu Viðars má einnig lesa þetta:

„Sýnileg ölvun var hjá stuðnings­mönnum Víkinga og einn stuðnings­maður hljóp inn á völlinn úr gömlu stúkunni að ég held, en ég sá ekki almennilega hvar hann kom inn. Hann gat síðan valsað um völlinn án afskipta í nokkurn tíma og ekki fyrr en hann var kominn fyrir framan stuðnings­menn Víkinga er hann stoppaði sem gæslan tók að bregðast við.“

Viðar nefnir líka að „einnig tók ég eftir bjórdósum í kringum gæslu sem stóð fyrir framan stuðnings­menn Víkinga, án þess að hafa séð þær fljúga þar inn, enda að fylgjast með leiknum sjálfum.“

Venju samkvæmt, og í samræmi við reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál, var skýrsla Viðars send til hlut­aðeigandi félags þann 4. október; því gefinn kostur á að koma að athuga­semdum vegna skýrslunnar fyrir næsta fund aga- og úrskurðar­nefndar.

Eins og áður sagði bar áfrýjun Víkings nokkurn árangur; í svari þeirra til áfrýjunar­nefndar segir svo:

„Í skýrslu eftirlits­manns leiksins segir að stuðnings­fólk Víkings hafi viðhaft særandi ummæli gagnvart leik­mönnum og þjálfara FH. Skýrslan er verulega einhliða og alls ekki í samræmi við upplifun þeirra sem félagið hefur rætt við eftir leikinn. Það hefur t.a.m. komið fram bæði í fjöl­miðlum og annars staðar að það hafi verið ölvun beggja megin í stúkunni og augljóst af myndefni frá RÚV að sóða­skapur var fyrir framan áhorfenda­palla beggja stuðnings­liða,“ segir í andsvari Víkinga.

Þeir sem vilja lesa skýrsluna í heild geta smellt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning