Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björk um samskiptin við Katrínu forsætisráðherra: „Mér finnst óheiðarlegt sem Katrín gerði“

Stór­stjarnan Björk Guðmunds­dóttir segir Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra, hafa verið óheiðarlega í samskiptum við hana fyrir fund á loftslags­ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York fyrir þremur árum.

Björk ræddi málið í Víðsjá á Rás 1.

Áður hafði Björk greint frá því í viðtali við dagblaðið The Guardian, í síðasta mánuði, að hún og Greta Thunberg, aðgerðar­sinni í loftslags­málum, hefðu gert samkomulag við Katrínu forsætis­ráðherra, þess efnis að hún myndi lýsa yfir neyðar­ástandi í loftslags­málum á viðburði árið 2019.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Ekki kom fram í viðtalinu um hvaða viðburð Björk hefði verið að vísa til.

En Björk og Greta Thunberg vonuðust innilega til þess að það myndi setja þrýsting á stjórn­völd á Íslandi um aðgerðir í loftslags­málum.

Þegar að því kom að Katrín átti að gefa út yfir­lýsinguna hefði hún hætt við, og það á síðustu stundu, eftir því sem Björk segir.

Í Víðsjá segir Björk að hún hafi verið í samskiptum við Katrínu fyrir ráðstefnuna; varað hana við því að þær Greta Thunberg ætluðu að skora á forsætis­ráðherra Norður­landa að lýsa yfir neyðar­ástandi í loftslags­málum; að fundurinn yrði uppstilltur gegn Katrínu að miklu leyti vegna þessa.

Greta Thunberg.

Kemur fram að Björk segist hafa boðið Katrínu að vera með þeim Gretu Thunberg í að skora á stjórn­völd á Norður­löndum og lýsa yfir neyðar­ástandi; segja að stjórn­völd hér á landi væru að vinna í því:

„Það sem mér finnst kannski smá óheiðarlegt sem Katrín gerði, er að hún hefði kannski átt að segja þarna: „Nei þetta er aðeins of djarft fyrir mig, við stjórn­völd ætlum ekki að vera með“ en það sem hún sagði var: „Þið þurfið ekki að halda þennan blaðamanna­fund því ég ætla að lýsa þessu yfir hvort eð er í ræðunni minni hjá Sameinuðu þjóðunum.“

Björk segist hafa treyst Katrínu forsætis­ráðherra:

„Síðan beið ég eftir ræðunni og hún sagði ekki neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning