Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“

„Sjáðu hvað þetta er fallegt, geislar sólarinnar tvístrast og endur­kastast af gólfinu,“ sagði myndlistar­kona við Jón Óðinn Waage júdó­þjálfara og pistla­höfund. Þau voru bæði gestir á hóteli og í mögnuðum pistli lýsir harðjaxlinn Jón Óðinn hvernig eitt lítið augnablik hafði gríðarleg áhrif á líf hans.

En Jón Óðinn sá enga fegurð og önugur benti hann myndlistar­konunni á að þetta væri aðeins ómerkileg sprungin rúða og gólfið væri bara óhreint.

„Já“, svar­aði konan. „Það er einmitt það sem býr til feg­urð­ina“.

Jón Óðinn gekk út og þegar hann sneri sér örstutt við kom hann auga á myndlistar­konuna sem enn horfði hugfangin á „eitthvað sem Jón gat engan veginn komið auga á.“

Þá fylltist hann samvisku­biti fyrir að hafa verið neikvæður og hafa aðeins getað séð það ljóta á meðan konan sá ólýsanlega fegurð.

„Þetta sat í mér lengi, mig langaði í þessa gleði sem myndlistar­konan upplifði. En það var sama hvað ég reyndi, ég fann aldrei fegurðina, bara það sem var að,“ segir Jón Óðinn og heldur áfram:

Jón Óðinn Waage

„Nokkru seinna var ég sem þjálfari á fótbolta­móti 6 til 7 ára. Einn af mínum drengjum meiddi sig og fór að gráta. Ég var strangur þjálfari, harður nagli sem þoldi ekkert væl og kenndi börnum það að harka af sér. Hughreysting mín fólst í að skipa drengnum að harka af sér,“ lýsir Jón Óðinn en það virkaði ekki. Drengurinn vildi aðeins fá að fara til foreldra sinna sem voru að fylgjast með leiknum. Eftir að hafa fylgt drengnum til þeirra hélt leikurinn áfram. Við gefum Jóni orðið:

„Skömmu seinna var togað laust í stakkinn minn, ég leit við og horfði framan í grát­bólgið andlit drengsins. Hann sagði skjálf­andi röddu:

„Ég er til­bú­inn núna“,

Ég sendi hann inn á völlinn. Þetta var prúður drengur, einn af þeim sem vildi alltaf leyfa hinum að hafa boltann, vildi ekkert vera fyrir.

Nú brá svo við að hann hljóp út um allt og barðist um alla bolta. Eftir hvern sprett leit hann stoltur upp í brekkuna þar sem foreldrar hans stóðu.

Ég leit á þau, þetta voru ungir foreldrar, hann var þeirra eina barn. Þarna stóðu þau og héldu utan um hvort annað, tárin runnu niður kinnar þeirra og mættu þar einlægu hamingju­brosi.

Ég hafði mjög oft upplifað svipuð atvik áður, en atvikið með myndlistar­konunni hafði kveikt í mér eitthvað.

Og nú sá ég loks feg­urð­ina.

Ég fór að gráta með foreldrunum. Engin sá það, ég var ennþá harður nagli, bara svo að það sé á hreinu.

Og myndlistar­konan, hún heitir Arna Vals­dóttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Desember nálgast óðum
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“