Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Þetta fólk getur tekið þessar skýrslur sínar og troðið þeim beint í tætarann“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, hafnar með öllu niður­stöðu Þjóð­hagsráðs um að lítið svigrúm sé til launa­hækkana. Hún segir þetta vera nokkuð sem valda­stéttin geti ekki ákveðið á lokuðum fundum. Sólveig skrifar á Facebook:

„Munið þið eftir fréttinni sem birtist fyrir skemmstu þar sem að Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði frá því að Þjóð­hagsráð hefði haldið fjölmarga aukafundi vegna komandi kjara­samnings­viðræðna? Meðal annars sagði forsætis­ráðherra þetta: „Við erum búin að undirbúa kjara­viðræðurnar. Við erum búin að halda fjölmarga aukafundi á vettvangi þjóð­hagsráðs þar sem saman koma aðilar vinnu­markaðarins, sveitar­félög, seðla­banki og stjórn­valda og ég held það skipti miklu máli að við höldum því þétta samtali áfram.“

Nú er niður­staða alls hins þétta samtals komin í ljós í formi texta tveggja hagfræðinga, þar sem sýn valda­stéttarinnar er gerð lýðnum ljós: Lítið sem ekkert svigrúm til launa­hækkana fyrir vinnu­aflið, ekki skal gefa Salek upp á bátinn.“

Sólveig minnir á að við búum ekki við lénsveldi. „Laun eru ekki ölmusa yfir­stéttarinnar til þeirra sem vinna vinnuna, svo að þau geti skrimt. Verkafólk, þau sem skapa arðinn og halda umönnunar­kerfum okkar uppi með vinnu sinni EIGA einfald­lega inni sinn skerf af hagvextinum og það eru þeirra lýðræðis­legu réttindi að ákveða hvað þau vilja og þurfa. Það er ekki valda­stéttarinnar að ákveða á lokuðum fundum. Við búum ekki í lénsveldi og erum ekki í ánauð, við erum frjálst fullorðið fólk og við látum ekki koma fram við okkur eins og vesalinga,“ segir Sólveig.

Hún segir yfirstétt Íslands markvisst vinna að því að auka misskiptingu. „Vinna verka­fólks er grund­völlur verðmæta­framleiðslu þjóð­félagsins, skapar auðinn sem yfirstétt landsins hefur í miklum móð á síðustu árum graðkað til sín í formi skatta­afsláttar vegna hlutabréfa­brasks, yfirtöku á húsnæðis­markaðnum, skatta­undanskota og yfirgengilegra ofurlauna (t.d. er forsætis­ráðherra með 2.470.000 krónur í mánaðar­laun, hefur hækkað um 1.079.000 kr. á síðustu 6 árum, og forseti lýðveldisins er með vel yfir 3 milljónir á mánuði á sama tíma og hann er leigusali á algróða­væddum reykvískum leigu­markaði.) Hér væri hægt að nefna fjölmörg önnur dæmi um yfir­gengilega þörf íslenskrar yfir­stéttar til að vinna markvisst að aukningu misskiptingar, á sama tíma og hún dælir frá sér orða­salötum um gæsku sína og frábær­legheit,“ segir Sólveig.

„Að fólk sem veit ekkert um líf vinnandi fólks og lífs­skilyrði, sem hefur svo lítinn áhuga að það nennir ekki einu sinni að spyrja skuli telja sig þess umkomið að reyna að kæfa baráttu okkur fyrir efnahags­legu réttlæti er satt best að segja ógeðslegt, ólýðræðislegt og að öllu leiti óþolandi.“

Hún segir hafa óskað eftir fundar­gerðum Þjóð­hagsráðs. „Þegar ég sá fréttina um alla fjölmörgu kjara­samnings-undir­búnings-fundi Þjóð­hagsráðs bað ég forseta ASÍ um fundar­gerðir. Sem formaður í öðru stærsta verkalýðs­félagi landsins taldi ég að umræður á fundunum kæmu mér mögulega eitthvað við. Mér var sagt að engar fundar­gerðir væru ritaðar. Mér hefur ekki verið boðið að sitja þessa fundi og eftir því sem ég best veit er enginn fulltrúi verka og láglaunafólks viðstaddur. Það kemur reyndar ekki á óvart og er í takt við algjöran og samstilltan vilja þeirra sem telja sig þess umkomin að stjórna öllu til að jaðar­setja vinnu­aflið hvar og hvenær sem er. Enda er enginn sann­leikur sannari á Íslandi í dag en sá að sérfræðinga­veldi meritókrasíunnar skal hafa vit fyrir vinnu­aflinu,“ segir Sólveig.

„Hverju hafa fundirnir skilað? Engu. Eða nei, ég tek það til baka. Þeir hafa auðvitað skilað mjög miklu. Þeir eru stórt verkefni um stétta­samvinnu þess fólks sem telur sig svo yfir okkur verkafólk hafið að þau þurfa ekkert umboð, ekkert samtal, engin samskipti við okkur. Þeirra „þétta samtal“ er aðeins innan þeirra þétta hóps og niður­staðan er afgerandi: Stöðug­leikinn í lífi okkar skal alfarið vera á kostnað ykkar. Við hækkun í launum um milljónir, en þegar kemur að ykkur er svigrúmið á þrotum. Og ef þið eruð ósatt er það einungis til marks um hvað þið eruð heimsk og sönnun á því að innleiðing Salek getur ekki komið nógu fljótt.

Ég hafna niður­stöðu hinna fjölmörgu funda Þjóð­hagsráðs. Þetta fólk getur tekið þessar skýrslur sínar og troðið þeim beint í tætarann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið