Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Ég rifja þetta upp fullur af skömm, sektarkennd og jafnvel sjálfsfyrirlitningu“

Jakob Smári Magnússon
Jakob Smári Magn­ús­son

„Ég ætla að rifja upp atvik sem átti sé stað sennilega árið 1982. Ég rifja þetta upp fullur af skömm, sektar­kennd og jafnvel sjálfs­fyrirlitningu.“

Svo hefst frásögn bassa­leikarans Jakobs Smára Magnússonar, sem hefur spilað með hljómsveitum svo sem Tappi Tíkarass, Grafík og SSSól, á Facebook. Jakob segir þar frá því þegar hann spilaði með Sævari Ciesielski á Litla Hrauni fyrir fjórum áratugum. Jakob segir sig þá hafa framið stórglæp, þó flestir myndu varla taka svo sterkt til orða.

Hér fyrir neðan má lesa frásögn Jakobs.

Þannig var að hljóm­sveitin Tappi Tíkarrass fór á Litla Hraun til að spila fyrir fangana. Allt gott og blessað með það. Þegar við höfðum lokið við að spila okkar sett buðum við föngunum að taka með okkur smá djamm, því þarna voru nú einhverjir sem kunnu á hljóðfæri og hefðu kannski gaman af að spila smá. Sævar Ciesielski var einn þeirra og fékk hann gítar í hönd og við spiluðum blús. Og þar kemur glæpurinn sem ég framdi innan veggja fangelsisins.

Þannig var að ég notaði svokallaðan chorus pedal mikið á bassann á þessum tíma enda vinsælll effekt meðal bassa­leikara í þá tíð. Mér fannst góð hugmynd að kveikja í chorusnum þegar talið var í blúsinn og spilaði því rólegan blús, í G minnir mig, með vaðandi chorus á bassanum. Algjör­lega smekk­laust og óviðeigandi, sérstak­lega á stað sem þessum þar sem menn eru jú að taka út sína refsingu og þurfa ekki frekari pyntingum að halda.

Ég skil ekki enn þann dag í dag að ég skuli ekki hafa verið stoppaður af, rifinn af mér chorusinn og ég jafnvel laminn í hausinn með pedalnum. Eða bara hreinlega hent í einangrun. Það hefði alla vega ekki átt að hleypa mér út úr fangelsinu.

Hvað hef ég svo mér til málsbóta ? Ekkert, nákvæmlega ekkert. Mér finnst ég ekki getað skýlt mér á bakvið aldur. Ekki var ég í annarlegu ástandi. Nei, ég á mér engar málsbætur. Mér þykir þó rétt að rifja þetta upp til að losa mig við þetta og biðja alla sem á hlýddu afsökunar. Þetta gerist ekki aftur.

Fyrir þá sem ekki vita hvað chorus er bendi ég til dæmis á hljóm­sveitina Cure eða meðfylgjandi lag með Nirvana.

Chorus er töff, en ekki í blús

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning