Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Flóttafólkið fær bedda í fyrrum mygluhúsnæði Vegagerðarinnar: „Okkur var sagt að þetta væri í lagi“

Flótta­fólki sem kemur hingað til lands á næstunni verður boðið bedda­pláss í fyrrum höfuð­stöðvum Vega­gerðarinnar í Borgar­túni. Fyrir nokkrum árum var 2. hæð húsnæðisins lokað vegna myglu­vandamála og starfsemi Vega­gerðarinnar flutt annað. Nú hefur Fjölda­hjálparstöð Rauða krossins verið opnuð í þessu sama húsnæði.

Atli Viðar Thor­sten­sen, sviðs­stjóri al­þjóða­sviðs hjá Rauða krossinum, stað­festir í samtali við Mannlíf að stöðin sé starfrækt á 2. og 3. hæð húsnæðisins. Hann segist hafa verið fullvissaður um að í lagi væri með húsnæðið og segir aðspurður að starfs­fólk hafi ekki orðið vart við nein óþægindi.

Vega­gerðin var í hús­næð­inu í 80 ár en 2. hæð­inni var lokað vegna myglu.

„Jú þetta er sama húsnæði. Þetta var lagt á borðið og húsnæðið þykir vera allt í lagi. Við höfum ekki lagt sérstakt mat á þetta sjálf en okkur var sagt að þetta væri í lagi og það er því ekkert sérstakt tilefni til að hafa áhyggjur. Ég geri ekki ráð fyrir því að við myndum vilja vera þarna í myglu en treystum því sem okkur er sagt,“ segir Atli Viðar.

Frá upphafi hafði Vega­gerðin bækistöðvar sínar í Borgar­túni í Reykjavík. Þar var stofnunin með starfsemi í tæp 80 ár eða allt frá árinu 1942, fyrst í Borgar­túni 5 og verkstæðis­byggingu en síðar einnig í Borgar­túni 7  ásamt viðbyggingum þar. Í fyrra­sumar opnaði Sigurður Ingi Jóhannsson, þá samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, nýtt húsnæði Vega­gerðarinnar við Suður­hraun í Garðabæ.

Hvað er mygla í húsnæði?

Mygla í húsnæði er afar eitrað efni, hún myndast þegar raki festist milli veggja eða undir gólfi.

Þegar myglan fer að dreifa sér þá gefur hún frá sér gró sem geta náð til líkamans og þessi gró gera þig veika. Veikindi sökum myglu eru mjög alvarleg og þau þarf að meðhöndla af lækni.

Fyrstu einkennin eru oft eins hver önnur veikindi, t.d kvef, þannig að það er mjög mikilvægt að vita hvaða einkennum á að leita eftir til að hægt sé að meðhöndla veikindi vegna myglu á réttan hátt.

Nánar má lesa um einkenni vegna myglu í húsnæði hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning