Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

„Mér finnst orðið sjúklega töff vera umhverfisvæn týpa“

Lögfræð­ing­urinn Eva H. Baldurs­dóttir skrifar um sjálf­bæran lífsstíl í sínum nýjasta pistli.

|
|
Eva H. Bald­urs­dóttir.

„Mér finnst orðið sjúklega töff að vera umhverfisvæn týpa, sem kýs að vera á hjóli og nota almennings­samgöngur þegar ég get, vel að borða ekki kjöt, vel að nota bíl minna, vel að kaupa minna dót. Ég er stolt af því að minnka vistspor mitt og á sama tíma gera betur við budduna og heilsuna mína,“ skrifar lögfræðingurinn Eva H. Baldurs­dóttir í sinn nýjasta pistil sem fjallar um sjálf­bæran lífsstíl.

„Að velja sjálf­bærari lífsstíl þýðir að það þarf að breyta lifnaðar­háttum. T.d. að draga úr þörfinni fyrir notkun náttúru­auðlinda, velja að kaupa ekki vörur sem fram­leiddar eru með ósjálfbærum hætti eða breyta umgengni í okkar daglega lífi t.d. að flokka rusl, sóa ekki mat og svo framvegis,“ skrifar Eva sem viðurkennir að það sé í sjálfu sér ekki ýkja langt síðan hún fór að hugsa um þessa hluti.

Við sjáum ekki að kjúklingar eru fram­leiddir í verk­smiðju eins og hver annar hlutur. Þeir eru hins vegar lif­andi dýr. Við vitum þetta flest, en kjósum að líta fram hjá því.

Hún bendir á að fólk í nútíma­samfélagi eigi það til að gleyma að hugsa um uppruna hluta og hvar hlutir enda svo. „Til dæmis kjúklingurinn sem við borðum kemur á frauð­bakka beint úr verslun, pakkaður í plast. Við sjáum ekki að kjúklingar eru fram­leiddir í verksmiðju eins og hver annar hlutur. Þeir eru hins vegar lifandi dýr. Við vitum þetta flest, en kjósum að líta fram hjá því. Að sama skapi sjáum við aldrei allt magnið af rusli sem heimilið losar t.d. á ári á einum stað. Það væri eflaust ágætis raun­veruleika­tenging á hrúga því öllu á einn stað. Því allt sem við kaupum endar einhvers staðar, hvort sem því er fargað eður ei.“

Meðfylgjandi eru svo átta góð ráð frá Evu:

  1. Minnka bílnotkun, draga úr skutli og nýta ferðirnar betur – hér eru ótal valmöguleikar, t.d. að sleppa bílnum stundum, eiga bara einn bíl á fjöl­skyldu, nýta ferðirnar betur í búðina, nota almennings­samgöngur og hjólið, taka strætó með börnum sínum og kenna þeim að nota hann sem og ferðast með öðru fólki til vinnu eða í skólann.
  2. Draga úr óþarfa neyslu – að taka upp mínimalisma í hugsun og framkvæmd. Spyrja sig hvort maður þurfi það sem maður eru að kaupa, hvort að þessi gjöf sé skyn­samleg kaup, draga úr óþarfa eyðslu, kaupa notuð húsgögn á bland eða fara í góða hirðinn og svo framvegis.
  3. Færri flug­ferðir.
  4. Nota sjálfbær hreinsi­efni á heimilið.
  5. Minnka kjötát – t.d. má sleppa því suma daga og sleppa því að kaupa verksmiðju­framleitt kjöt.
  6. Rækta eigin mat t.d. að vera með garð, krydd­jurtir eða salat. Nú má rækta mjög margt á svölunum.
  7. Sleppa matarsóun með að vera meðvituð í matar­innkaupum, elda það sem er til og skipuleggja innkaup með hliðsjón af því hvað er til.
  8. Muna eftir fjölnota­pokunum í matvöru­verslunum, ekki taka plastpoka fyrir grænmeti og forðast vörur pakkaðar í plast. Í mótmæla­skyni má t.d. taka vörur úr óþarfa plast­umbúðum og skilja þær eftir sem og mæta með eigin ílát.

Pistil Evu má lesa í heild sinni hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá