Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón Baldvin þögull um ásakanir Ingibjargar Sólrúnar: „Nei, hann er ekki í stuði til þess núna.“

Bryndís og Jón Baldvin
Bryndís og Jón Baldvin

„Nei, hann er ekki í stuði til þess núna,“ segir Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins Hannibals­sonar sem varð fyrir svörum þegar Mannlíf hafði samband og óskaði eftir að fá að ræða beint við fyrrum ráðherra. Hún útskýrir frekar: „Okkur líður ekki vel, eins og þú getur ímyndað þér.“

Stundin birti í síðustu viku ítarlegar dagbókar­færslur 15 ára stúlku í Hagaskóla sem lýstu sambandi hennar og gagnfræði­skóla­kennara, Jóns Baldvins Hannibaldssyni.

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir fyrr­verandi ráðherra skrifar á Facebook-síðu sína um Jón Baldvin, hennar fyrrum félaga í stjórn­málunum.

Þar gerir hún mál Jóns Baldvins Hannibals­sonar að umtals­efni, en kveikjan að skrifum Ingibjargar Sólrúnar eru dagbókar­færslur Þóru Hreins­dóttur; fyrrum nemanda Jóns Baldvins Hannibals­sonar í Melaskóla árið 1970, sem birtust í forsíðu­úttekt Stundarinnar, en blaðið kom úr prentun fyrir helgi.

„Ég skrifa þetta vegna þess að Jón Baldvin Hannibalsson hefur aldrei viðurkennt misgjörðir sínar og enn láta margir þær sér í léttu rúmi liggja af því þeim finnst JBH hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri pólitík. Það kemur þessu máli hins vegar ekkert við og menn komast aldrei framhjá þeirri staðreynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum pólitíska vettvangi hefur hann sjálfur lítilsvirt með því að misbeita því valdi sem honum var falið gagnvart fjölmörgum unglings­stúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Jón Baldvin Hannibaldsson bíður nú eftir að mál sem höfðað var gegn honum verði tekið fyrir hjá Lands­rétti. Í skriflegu svari Jón Baldvin Hannibaldssonar til Stundarinnar vegna fréttarinnar stendur: „Vera má, að tíma­setningin eigi að skapa viðeigandi andrúms­loft kringum væntanlegt réttar­hald fyrir Landsdómi í „rass­stroku­málinu“ alræmda, þar sem ákæru­valdið freistar þess að hnekkja sýknudómi héraðs­dóms.“

Skrifar hann einnig í sama bréfi: „Eitt er víst: Ég fyrirlít sorp­blaða­mennsku af þessum toga og frábýð mér samskipti við mannorðs­þjófa, sem þessa iðju stunda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning