Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Skáldskapur er andstæða skyndibitans

Matthías Jóhannessen
Matthías Jóhann­es­sen

Hlaðvarps­þættir Jóns Sigurðar Eyjólfs­sonar, Rúntað á Rucio, ljúka göngu sinni í þessari viku og að því tilefni breytir hann til og horfir nú heim til Íslands í stað þess að grúska í menningu þar syðra. Nú er rótað í skáldskap Matthíasar Jóhannessen en þá rifjast upp fyrir honum löng saga sem teygir anga sína til Grikk­lands, Katalóníu sem og uppá ritstjórn Frétta­blaðsins í Skafta­hlíð. Kemur þar og margt þjóðþekkt fólk við sögu. En hvað gengur sögumanni til?

„Þó það geti vissulega gerst að einhver lesi eða heyri ljóð í fyrsta sinn og falli þar með fyrir skáldinu sem það orti þá er hitt mun algengara að skáld­skapurinn falli einsog fræ um lífsleið okkar og verði síðan, hægt og bítandi, að þeim gróðri sem gefur lífinu gildi. Þannig var það til dæmis með mig og skáldskap Matthísar Jóhannessen og mig langaði til að segja þá sögu, bæði til þess að deila dálæti mínu á skáldinu en eins til þess að lýsa þessu eðli skáld­skaparins sem í raun er andstæða skyndi­bitans. Svo sagði Matthías sjálfur á einum stað: 

„…skriffinnar alls­ráðandi á fjöl­miðlum,

en skáldin hætt að komast að

til að minna okkur á hver

við erum.“

Kannski er kominn tími til að hleypa skáldunum að á ný nú þegar við höfum ekki hugmynd hver við erum né hvert við erum fara. Allavega hefur skáld­skapur Matthíasar reynst ágætis kompás fyrir mig.“ 

En hvað er svona flott við ljóð Matthíasar? „Að lýsa skáldskap er einsog að lýsa mat sem er nátt­úrlega ófullnægjandi miðað við þá reynslu að bragða á honum. Svo til að svara þessu er best að gefa ykkur smakk:

ör af kvíðboga mínum

í djúpu sári 

þínu.

Svona næring finnst einungis á hlaðborði Matthíasar.“

Í lok þáttar leikur Jón Sigurður lag sem hann samdi við ljóð Matthíasar, Ferð inní janúar, en auk hans syngur Alma Jóns­dóttir með honum. Einnig verður flutt lagið Zemb sem er tileinkað Sigurði Maríasi en hann kemur einmitt mikið við sögu í þættinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt