Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Eva Hauks hjá Sölva: „Það er rosalega vont samfélag þar sem allir eru sammála“

Eva Hauksdóttir.
Eva Hauks­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Eva Hauks­dóttir lögmaður er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar.

Eva, sem hefur vakið mikla athygli fyrir að tjá óhikstað skoðanir sínar, segir ákveðinn hóp fólks beita fyrir sig minnihluta­hópum til að þvinga aðra í að vera sammála þeim. Það sé jafnframt orðið mjög vítt hverjir teljast til minnihluta­hópa árið 2022:

,,Umræðan er orðin mjög skrýtin þegar það má ekki lengur anda á alla sem eiga að vera í einhvers konar minnihlutahóp og svo er búið að víkka mjög mikið skilgreininguna á því hverjir eru í minnihlutahóp. Það er verið að búa til minnihluta­hópa til dæmis úr feminstum. Feministar eru enginn minnihluta­hópur lengur, þó að það hafi einu sinni verið þannig. Það er ákveðin hópur sem vill banna tjáningar­frelsi allra sem eru ósammála þeim. Sumir vilja bara alls ekki samfélag þar sem ólíkar skoðanir eru leyfðar og sá hópur vill fá að stýra umræðunni þannig að allir séu sammála þeim. En svo er eins og þessi sami hópur virðist gefa sér að reglurnar þeirra geti aldrei átt við um þau sjálf. Þeir sem vilja stoppa tjáningar­frelsið verða að hugsa út í það að það mun koma að þeim einn daginn. Ef þú vilt setja almennar reglur verður þú líka að gera ráð fyrir því að reglurnar muni gilda um þig. Þó að það sé ákveðinn tíðarandi núna getur það breyst hratt.”

Eva segir samfélagið oft á tíðum komið í ógöngur þegar kemur að pólariseringu og kröfu um að fólk stilli sér í ákveðið lið:

,,Það er rosalega sterk tilhneiging til að krefja fólk um að vera í einhverju liði. Það þarf stundum ekki meira en að þú setjir ,,like” á eitthvað sem vinir þínir eru ekki sammála, þá ertu jafnvel dregin til ábyrgðar fyrir það. Ég hef oft fengið skilaboð þar sem fólk er reitt út í mig fyrir að hafa ,,like-að” eitthvað frá Hannesi Hólmsteini eða Jóni Steinari Gunnlaugs­syni. Þó að ég sé ósammála þeim í pólitík get ég alveg verið sammála þeim í tilteknum málum. Það er rosalega vont samfélag þar sem allir eru sammála. Það heitir einfald­lega ,,Cult” og ég skil ekki hver vill svoleiðis samfélag. Þessi skotgrafa­hernaður á internetinu og það að mega ekki spyrja óþægilegra spurninga er eitthvað sem mér finnst ekki geðslegt. Mér finnst mjög frelsandi að mega taka sjálf­stæða afstöðu í hverju máli óháð einhverju liði og ég hreinlega skil ekki af hverju fólk velur að láta draga sig inn í það að verða hafa tilteknar skoðanir.”

Eva, sem hefur átt mjög fjöl­breytta og stór­merkilega ævi ræðir í þættinum meðal annars um mál móður sinnar, sem hún og systkini hennar hafa kært:

,,Ég og systkini mín kærðum meðferðina á móður okkar. Við teljum að

hún hafi sætt lífsloka­meðferð að óþörfu, án þess að það hafi verið forsendur fyrir því. Ég viðurkenni fúslega að ég verð oft reið þegar ég sé fólk tjá sig um þetta mál opinber­lega án þess að hafa til þess neinar forsendur. Það er auðvitað allt öðruvísi að horfa á þetta mál út frá lagalegu sjónar­miði, af því að ég er með það miklar tilfinningar tengdar því. En þetta eru orðin allt í allt 13 mál sem ég veit að hafa verið kærð til lögreglu sem tengjast þessum lækni. Það er augljós­lega mjög margt í þessu máli skrýtið.”

Í þættinum ræða Sölvi og Eva um réttar­kerfið, sögu Evu, rétt­trúnaðinn og margt fleira.

Hægt er að nálgast viðtalið við Evu og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið