Minnst fjórir eru látnir eftir að maður hóf skothríð á sjúkrahúsi í Tulsa, Oklahoma í Bandaríkjunum í kvöld. Maðurinn gekk inn á sjúkrahúsið vopnaður riffli, fór upp á aðra hæð og hóf skothríðina. Samkvæmt fréttamiðlinum CNN er fjöldi þeirra sem særðust enn á reiki en er í hið minnsta einn talinn alvarlega særður.
„Þetta var brjálæði þarna inni, með hundruð herbergja og hundruð manna sem reyndu að komast út úr byggingunni,“ sagði Richard Meulenberg lögreglustjóri Tulsa í samtali við CNN. Skotmaðurinn fannst síðar látinn og er hann talinn hafa svipt sig lífi.
Fréttin verður uppfærð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir