Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynhildi var nauðgað af vini sínum í MH: „Passið ykkur á þessum“

Brynhildur Karls­dóttir sýndi mikið hugrekki í gær þegar hún steig fram og lýsti líðan sinni eftir að henni var nauðgað í Mennta­skólanum við Hamrahlíð, MH, fyrir 10 árum síðan. Þá mættu henni lokaðar dyr hjá skóla­yfirvöldum og kvíðaköst, ótti og áfalla­streita urðu til þess að Brynhildur flosnaði upp úr námi.

Brynhildur segir sögu sína í pistli, sem hún ritar eftir að sjá sama uppi á teningnum í MH þar sem allt logar innanhús vegna meintra kynferðis­brota og afskipta­leysi skóla­yfirvalda.

Hér fyrir neðan má sjá pistil Brynhildar í heild sinni:

„Þegar ég var sautján ára nemandi í MH var mér nauðgað af vini mínum og skóla­bróður. Þegar ég safnaði loksins kjarki til að segja skóla­yfirvöldum frá því mættu mér lokaðar dyr. Kvíðaköst, ótti og áfalla­streita breyttu því ekki að ég hafði aldrei kært atvikið til lögreglu og skóla­stjórnendur gátu ekki boðið mér betur en að skipta um skóla. Drauma­skólinn MH var í baksýnis­speglinum og fljótlega hætti ég að mæta í MK, þar sem ég þekkti engan, og flosnaði upp úr námi.

Á svipuðum tíma var besta vinkona mín hún Elísabet í svipuðu stríði. Hún kærði hrotta­lega nauðgun og studdi mál sitt með veiga­miklum sönnunum. Samt þurfti hún að rekast á ofbeldis­manninn á göngum skólans og sitja með honum í dönsku­tímum. Elísabet fékk hvergi réttlæti, enginn passaði upp á hana og hún ein var látin axla ábyrgð á því ofbeldi sem hún varð fyrir, sautján ára gömul. Hún framdi sjálfs­morð árið 2019. 

Nú, meira en tíu árum síðar, tekur nemandi í MH af skarið, tekur sér rauðan varalit í hönd og notar hann sem skriffæri, skrifar skilaboð sín stórum stöfum á spegil í skólanum. „Af hverju er ég að labba á sömu göngum og nauðgarar?“ Þetta veit ég vegna þess að ég á bæði systur og mágkonu í MH, þær lýsa hálf­gerðri byltingu meðal nemenda, hrífandi mótmæla­gjörningi og áhrifa­mikilli aðgerð. Þær lýsa nöfnum sem letruð eru á speglana, eins og til að segja: „Passið ykkur á þessum“. Allt inniber þetta skýra kröfu nemenda um réttlæti. 

Það er síðan lýsandi að heyra um viðbrögð skóla­stjórnenda. Fyrstu viðbrögð starfs­manna sem mæta á svæðið eru að afskrifa uppátækið sem múgæsing eða „fjölda­hysteríu“. Strax er hanskinn tekinn upp fyrir strákana og ekkert mark tekið á þolendum, meira að segja speglarnir fengu meiri samúð en þær! Einn starfs­maðurinn hrópaði upp yfir sig að nú væri hreinlega búið að taka þessa drengi „af lífi“. Svona gífuryrði eru reyk­sprengja enda kostar kynferðis­ofbeldi vissulega mannslíf, það eru þolendur sem láta lífið, þolendur eins og Elísabet. 

Þetta fyllir mig reiði.

Það mætti halda að stefna skólans sé vísvintandi að klúðra viðkvæmum málum á kostnað þolenda, sama stefna og þegar ég var nemandi, framfylgt af sama starfs­fólki.

Í skóla sem hefur það orð á sér að vera framsýnn og opinn sýnist mér ekkert hafa breyst, heilli Metoo byltingu síðar. Ef við getum ekki kennt strákunum okkar að hætta að nauðga þá verðum við að verja stelpurnar okkar fyrir þeirri lítilsvirðingu að skóla­yfirvöld taki ekki mark á þeim. Höfundur er móðir, listakona og fyrrum nemandi í MH.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning