Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Anna segir af sér vegna „grófs kynferðislegs ofbeldis“ í Ferðafélagi Ísland

©Kristinn Ingvarsson Anna Dóra Sæþórsdóttir
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Anna Dóra Sæþórs­dóttir, forseti Ferða­félags Íslands og prófessor við Háskóla Íslands, tilkynnir á Facebook að hún segi af sér sem forseti félagsins. Hún segist hafa gefist upp á að takast á við „gróft kynferðislegt ofbeldi“ í félaginu.

Anna Dóra skrifar:

Kæru vinir, rétt í þessu sendi ég tilkynninguna hér að neðan til Ferða­félags Íslands þar sem ég tilkynni um afsögn mína sem forseti félagsins. Það er með miklum trega sem ég geri það en eins og kemur fram í bréfinu þá vil ég ekki starfa í félagi þar sem stjórnar­hættir og siðferðisleg gildi, sem ganga þvert á mín eigin gildi, ráða ríkjum. Ég hef reynt að vinna að breytingum en innan stjórnar hefur ekki verið vilji til að breyta starfs­háttum og því skilja leiðir. Ástæður afsagnarinnar geri ég opinberar því mér finnst rétt að upplýsa félags­fólk um þau mál sem eru í gangi innan félagsins.

…

Þann 8. júní 2021 var ég kjörin forseti Ferða­félags Íslands á aðalfundi félagsins. Það var mér mikill heiður að vera valin til að gegna þessu embætti, fyrst kvenna, enda hefur Ferða­félagið fylgt mér síðan ég, sem lítil stúlka, hóf að ferðast um Ísland með móður minni, í hinum ýmsu ferðum félagsins. Ég hef bæði menntun og reynslu sem hentar vel í starfi sem forseti Ferða­félagsins. Ég er prófessor í ferðamála­fræði við Háskóla Íslands og hef rannsakað marg­vísleg málefni ferða­þjónustunnar, meðal annars þolmörk ferða­manna, sér í lagi á miðhálendinu. Ég hef einnig mikla stjórnunar­reynslu, þar sem ég hef meðal annars verið deildar­forseti Líf- og umhverfis­vísinda­deildar Háskóla Íslands undan­farin sex ár, verið formaður faghóps á vegum stjórn­valda um ramma­áætlun (Áætlun um vernd og orku­nýtingu landsvæða) í meira en áratug og setið í ýmsum stjórnum.

Fljótlega eftir kosningu fóru mér að berast upplýsingar um ýmis mál sem ekki hafði verið brugðist við af hendi félagsins, heldur virtist upplýsingum ítrekað hafa verið stungið undir stól, hvort sem þær vörðuðu ásakanir um áreitni og gróft kynferðislegt ofbeldi eða athuga­semdir um rekstur félagsins. Þegar ég fór að beita mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum og öðrum fór að bera á brestum í samstarfi mínu við stjórn og framkvæmda­stjóra.

Alvarlegustu málin snertu einstaklinga sem höfðu gerst brotlegir á siða­reglum félagsins eða verið ásakaðir um áreitni eða gróft kynferðislegt ofbeldi. Æðstu stjórn­endur félagsins höfðu haft upplýsingar um þessi mál í lengri tíma, án þess að taka á þeim. Þvert á móti fengu þeir sem þessum sökum voru bornir að starfa áfram sem farar­stjórar á vegum félagsins. Eitt þessara mála varðaði stjórnar­mann í félaginu. Ég beitti mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum af festu og setti af stað athugun á þeim, sem og endur­skoðun á stefnu og ferlum félagsins þegar kemur að slíkum málum. Í kjölfarið voru þessi mál til lykta leidd, og það síðastnefnda með því að viðkomandi stjórnar­maður sagði sig úr stjórn.

Mér til undrunar kom upp mikill ágrein­ingur í stjórn félagsins varðandi meðhöndlun ofan­greindra mála og innan stjórnar voru einstaklingar sem vildu ekki taka á þeim. Samstarfs­örðugleikar hafa verið í stjórninni allt frá því að þessi mál komu upp. Ég taldi hins vegar að það væri ætlun stjórnar að halda ótrauð áfram eftir afgreiðslu þeirra. Mér kom því á óvart þegar ákveðnir stjórnar­menn vildu fljótlega taka aftur upp málið sem varðaði stjórnar­manninn fyrr­verandi, fáum mánuðum eftir að það var til lykta leitt með úrsögn hans úr stjórn félagsins. Einn af þessum stjórnar­mönnum, sem er góðvinur þessa fyrr­verandi stjórnar­manns, hefur beitt sér af hörku fyrir því að stjórnar­maðurinn fyrr­verandi fái aftur að starfa fyrir hönd félagsins, þrátt fyrir að engin málefnaleg eða viðskiptaleg rök séu fyrir því. Sá sem sagði af sér hefur enga sérhæfða þekkingu til starfa innan félagsins, sem fjöldi annarra getur ekki innt jafnvel af hendi. Ávinningur af slíkri ráðstöfun væri því enginn fyrir Ferða­félagið en myndi hins vegar valda félaginu orðspors­áhættu og mögulega aftra fólki frá þátttöku í ferðum félagsins, auk hættunnar á því að fyrri hegðun myndi endurtaka sig og aðrar konur yrðu fyrir áreitni. Helstu rökin sem notuð voru til að réttlæta endurkomu umrædds fyrr­verandi stjórnar­manns voru að hann væri „vinur okkar“ og að „við skulduðum honum“. Það er að mínu mati óeðlilegt að stjórnar­fólk taki þátt í umræðu og ákvörðunum um vini sína og beiti aðstöðu sinni til að veita þeim sérstaka fyrir­greiðslu.

Nýlega bárust mér upplýsingar um enn eitt málið (áreitni og ósæmileg hegðun í skipulagðri ferð á vegum félagsins) sem snertir stjórnar­mann í félaginu, sem hafði ekki verið meðhöndlað í samræmi við stefnu félagsins. Þegar ég fékk veður af málinu og óskaði eftir upplýsingum um það, voru viðbrögðin þau að hafa uppi óbeinar hótanir gagnvart farar­stjóra ferðarinnar, auk þess sem haft var samband við vinkonu konunnar sem fyrir áreitinu varð. Þeim var tilkynnt að það myndi hafa afleiðingar ef þetta mál yrði rætt frekar. 

Fleiri mál hafa komið upp sem hafa valdið ágreiningi og samstarfs­örðugleikum innan stjórnar en þar má bæði nefna almennan rekstur félagsins og stjórnar­hætti þess. Ítrekað var kvartað undan spurningum mínum um rekstur félagsins en hann heyrir beint undir ábyrgðar­svið forseta og stjórnar. Sagt var að ég ætti að einbeita mér að þeim þáttum sem ég hafi sérþekkingu á, sem sé ferða­málum, náttúru­vernd og umhverfis­málum. Þetta hafði þau áhrif að ég fór að veigra mér við því að spyrja spurninga til að halda friðinn. Í því samhengi er vert að nefna að ein af megin­skyldum stjórnar er að hafa eftirlits­hlutverk með stjórn­endum og starfsemi félagsins og slíkt er ómögulegt ef stjórn stuðlar að menningu og andrúms­lofti þar sem spurningar eru illar séðar.

Niður­staða mín er að innan stjórnar og meðal stjórn­enda sé fólk sem ber ekki hagsmuni félagsins og félags­manna fyrir brjósti. Áherslan hjá þessu fólki virðist vera að viðhalda ákveðnu valda­jafnvægi þar sem embættum og verkefnum er úthlutað til stjórnar­fólks og vina og ekki er tekið á málum sem snerta þá sem tengjast þessum einstaklingum. Þessi hópur bregst ókvæða við þeim sem reyna að breyta því hvernig félagið vinnur ef slíkt kynni að raska valda­jafnvæginu.

Þetta valda­jafnvægi endur­speglast kannski hvað best í samsetningu stjórnar. Í stjórn félagsins og starfs­mannahópi situr fólk sem tengist sterkum böndum, ýmist í gegnum það að hafa setið mjög lengi í stjórninni, sumir vel á annan áratug, eða með fjöl­skyldu- og vina­böndum. Tilraunum til að breyta þessu í aðdrag­anda síðasta aðal­fundar var illa tekið. Formaður kjör­nefndar, vinur þess stjórnar­manns sem sagði sig úr stjórninni vegna metoo-mála, virti að vettugi óskir mínar um að inn í stjórnina kæmi ung kona og lagði þess í stað til að vinur framkvæmda­stjóra félagsins yrði stjórnar­maður. Gekk það eftir.

Fyrr­greind málefni hafa orðið þess valdandi að ákveðið stjórnar­fólk sýnir mér óvild og dónaskap og hefur reynt að útiloka mig frá starfi félagsins. Þetta kemur hvað skýrast fram í bréfi sem ég fékk frá meirihluta stjórnar þann 1. júní síðastliðinn þar sem mér var bannað að vera í samskiptum við framkvæmda­stjóra, starfs­fólk skrif­stofu félagsins og annað stjórnar­fólk næstu mánuði. Ég átti engu að síður að sitja áfram sem forseti með þeirri ábyrgð sem í því felst. Þetta bréf er í raun birtingar­mynd þeirra stjórnar­hátta sem tíðkast innan félagsins og framkomu meirihluta stjórnar í minn garð.

Ég vil ekki starfa í félagi þar sem stjórnar­hættir og siðferðisleg gildi sem ganga þvert á mín eigin gildi ráða ríkjum. Ég hef enn fremur ekki áhuga á að starfa með hópi þar sem útilokun og dóna­skapur eru talin ásættanleg hegðun. Það er von mín að starfs­hættir félagsins breytist því að samfélagið hefur breyst og mikilvægt er að stærsta útivistar­félag landsins taki mið af þeim siðferðis­gildum sem ríkja í þjóð­félaginu. Þar sem ekki virðist vera vilji innan stjórnar félagsins að breyta þessu segi ég hér með af mér sem forseti Ferða­félags Íslands.

Það er von mín að félagar í Ferða­félagi Ísland muni á komandi misserum beita sér fyrir breyttum starfs­háttum og siðbót innan félagsins. Þangað til að svo verður hef ég ekki áhuga á því að starfa frekar innan félagsins og segi mig hér með einnig úr félaginu.

Virðingar­fyllst,

Anna Dóra Sæþórs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning