Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Patr!k er búinn með „fuckboi“ pakkann: „Ég á líka bara æðislega kærustu“

Patrik Atlason
Patrik Atlason

Tónlistar­maðurinn Patr!k, sem virðist fyrir misskilning vera kallaður Prettyboitjokko en það er heitið á vinsælasta lagi hans, mætti í settið hjá Götu­strákunum á Brot­kastinu.

Patr!k birtist eins og moldrík þruma úr heiðskýru lofti fyrir stuttu með fimm lög sem öll hafa náð vinsældar­listum yngra fólks en auglýsinga­herferðin til að kynna popparann hefur verið afar áberandi undan­farna mánuði. Patr!k er duglegur að „flexa“ ríkidæmi sínu, keyrandi um á 14 milljóna króna bíl og vel klæddur í merkja­vörum en ekki er það tónlistin sem hefur gert hann svo ríkan, heldur ætternið. Hann er barnabarn Helga í Góu en umboðs­maður hans er annar væntanlegur erfingi ríkidæmis, Birgitta Líf Björns­dóttir, dóttir Bjössa í World Class.

Í viðtali Götu­stráka við súkkulaðisæta strákinn barst talið að útlitinu, lookinu:

Bjarki: „Ég myndi segja að ef ég sæi einhvern annað en þig í þessum fötum þá myndi ég halda að þessi gaur sé maxed out á Netgíró, skilurðu en ég veit alveg að þú ert á 14 milljón króna Porsche og að þú ert búinn að kaupa þetta sjálfur.“

Aron Mímir: „Ég man að ég var einhvern tíma á vakt á Polo og þú mætti. Og ég hugsaði bara „Shit, þetta er rosaleg týpa!“. Ég hugsaði um það, ég hef sjaldan séð aðra eins týpu.“

Bjarki: „Er þetta þú eða ertu að reyna að vera einhver týpa til að fara út fyrir eitthvað eða hefurðu bara gaman að þessu?“

Patr!k: „Sko, þegar ég byrjaði að gera tónlist þá veit ég ekki hvort það var meðvitað en ég byrjaði að gera svona tónlist, þá bara „Hey, á má allt í einu bara klæða mig svolítið meira funky eða eitthvað“ og það vakti athygli fyrst. Ég fór að pósta myndum á Instagram í einhverju dressi og bara „Vó, í hverju er hann núna?“.“

Bjarki: „Ég fékk oft svona linka peistaða á mig og svona „Í hverju er hann?“.“

Patr!k: „Pældu samt í þessu small dick mentality í Íslendingum en markaðs­setningin mín hefur bara gengið út á þetta, ég vill að fólk sendi þetta, svona gaurar sem bara skilja ekki. Og það er bara allt í lagi skilurðu?“

Bjarki: „Þú ert bara í háum skóm í netabol í einhverju partýi bara chillin´.“

Patr!ik: „Já. Algjör­lega sko.“

Bjarki: „Og það er bara áhugavert líka því að fólk sem er þarna úti er bara í Jack & Jones fötum.“

Patr!k: „Ég held að þetta kallist bara peacocking. Þá viltu standa út, þú vilt vera einhver svona, ég held að það sé aðallega það. Að maður vilji standa út, svona „Sjáið mig“ dæmi.“

Bjarki: „Þetta er eins og þegar ég var í rauða leður­vestinu, hefurðu séð það?“

Patr!k: „Ég hef séð það.“

Bjarki: „Er það ekki eitthvað sem þú gætir fengið lánað hjá mér?“

Patr!k: „Jú, við ættum að skoða það.“

Spjallið berst að súkkulaðinu sem ber hetiið prettyboitjokko og markaðs­setningunni almennt.

Aron: „Þetta er náttúru­lega geituð markaðs­setning, bíllinn, súkkulaðið, hvað fleira gerðirðu til að markaðs­setja sjálfan þig?“

Patr!k: „Ég lét merkja einhvern drykk og svo var ég með þetta útgáfupartý.“

Því næst barst talið að gagnrýnis­röddunum á Twitter.

Patr!k: „Góða fólkið á Twitter maður, djöfull. Fyndið hvað þau sátu lengi á sér, komu mjög seint inn í þessa umræðu. Allt í einu kom einhver gæi og hann gat bara ekki hamið sig og svo komu alveg 20 aðrir með.“

Aron: „Þeir bíða þar til maður er kominn með alvöru velgengni.“

Patr!k: „Já svona, „Ég ætla ekki að gefa honum cloud-ið strax“.“

Að lokum lá Götu­strákunum á að vita hvort það sé ekki svolítið erfitt að vera á föstu þegar maður er orðinn sá heitasti í bransanum.

Bjarki: „Hefurðu ekkert hugsað „Af hverju er ég ekki á lausu?“ Af því að þú ert alveg prettyboifuckboi líka.“

Patr!k: „Já sko, ég er bara búinn með þennan pakka sko. Ég er að verða 29 ára. Ég byrjaði snemma og er bara búinn með þetta, að vera á lausu. Ég á líka bara æðislega kærustu, það er mikið henni að þakka… ég veit ekki hversu oft ég hef verið við hana bara svona, sérstak­lega áður en ég var búinn að gefa út lag, „Hvað er ég að gera?“ Búinn að vera uppi í stúdíó og reyna að rembast. Ég á svo mörg ógeðslega léleg lög,“ segir Patr!k og útskýrir hvernig kærastan hefur hjálpað honum. „Hún sagði „Þú ert ekkert að gera þetta fyrir neinn annan en þig, þú ert ekki að gera þetta fyrir pening“.“

Bjarki: „Ertu ríkur?“

Patr!k: „Ég hef það gott sko.“

Hægt er að horfa á klippuna hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt