Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Umsátur í kjölfar skotárásar – Byssumaðurinn skotinn

Mynd// skjáskot af fréttamynd MBL
Mynd// skjá­skot af frétta­mynd MBL

Tæplega sextugur maður var skotinn í aðgerðum sérsveitar lögreglu, eftir að hann skaut úr hagla­byssu úr íbúð sinni í Árbænum. Maðurinn var síðar úrskurðaður látinn. Skrifuð var ítarleg yfirferð atburða­rásarinnar í Morgun­blaðinu, þann 3. desember 2011, vegna skot­árásar manns í Hraunbæ 20, í Reykjavík.

Skaut út um glugga með haglabyssu

Í frétt Morgun­blaðsins stóð: „Tæplega sextugur maður bjó einn í íbúð við Hraunbæ. Nágrannar urðu varir við að maðurinn kom heim með látum í fyrra­kvöld. Einhverjir þeirra heyrðu hljóð um klukkan hálfeitt um nóttina sem þeir tengja við að fyrsta skotinu hafi verið hleypt af í íbúð mannsins. Þá vakti hundur eins nágrannans eiganda sinn og fleiri vöknuðu um svipað leyti. Lögreglan segist hafa fengið tilkynningu um háværa hvelli um klukkan þrjú um nóttina. Almennir lögreglu­menn voru sendir á staðinn til að kanna málið og þeir biðu eftir aðstoð sérsveitar­manna. Ekki tókst að ná sambandi við manninn og opnuðu lögreglu­menn íbúðina sem er á annarri hæð í fjölbýlis­húsi. Tilgangurinn var að sögn lögreglu að kalla til hans.

Maðurinn skaut á lögreglu

„Skotið lenti á skildi sérsveitar­manns sem kastaðist við það aftur á bak og niður stigann. Mun hann hafa rotast. Tveir almennir lögreglu­menn leituðu skjóls uppi á þriðju hæð. Lögreglan dró sig til baka og öll sérsveitin var kölluð út. Almennu lögreglu­mönnunum var komið út og stiga­gangurinn rýmdur. Lögreglan náði ekki sambandi við manninn en taldi að fólk sem væri á ferli í nágrenni íbúðar hans væri í hættu. Ákveðið var að reyna að yfirbuga hann með beitingu gasvopna. Um klukkan sex var reyk­hylkjum skotið inn um glugga á svefn­herbergi og eldhúsi í íbúð mannsins. Ekki tókst að svæla hann út því hann hóf þess í stað að skjóta út um glugga íbúðarinnar, að því er fram kom hjá Stefáni Eiríks­syni, lögreglu­stjóra á höfuð­borgar­svæðinu, á blaðamanna­fundi í gær. Skotin dundu yfir bíla­stæðið og í gær voru lögreglu­menn að leita að ummerkjum á öllu svæðinu. Þegar sérsveitar­menn ruddust inn í íbúðina til að yfirbuga manninn skaut hann nokkrum skotum að þeim. Hann hitti hjálm­klætt höfuð lögreglu­manns sem féll við og skot fóru fram hjá höfðum annarra, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Sérsveitin skaut þá á móti og særði manninn. Hann var úrskurðaður látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús. Ekki fengust í gær nánari upplýsingar um aðstæður í íbúðinni eða hvernig byssu­maðurinn féll. Í frétta­tilkynningu ríkis­lögreglu­stjóra og lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu segir að við fyrstu sýn verði ekki betur séð en sérsveitar­mennirnir hafi farið eftir verklags­reglum.“

Mynd/skjá­skot

Lögreglan harmaði atburðinn

Farið var ítarlega yfir málið og aðstæður lögreglu á vettvangi. Haraldur Johannessen, þáverandi ríkis­lögreglu­stjóri tók fram í frétta­tilkynningu að: „Lögreglan harmar þennan atburð og vill koma á framfæri innilegum samúðar­kveðjum til fjöl­skyldu mannsins“

Meiðsli lögreglumannanna

Meiðsli vegna skota mannsins á lögregluna reyndust minni­háttar og taldi Stefán Eiríksson þá verandi lögreglu­stjóra að hlífðar­búnaður lögreglu og þjálfun hafi bjargað. Ennfremur kemur fram í fréttinnni: „Þá telur lögreglan að almennir lögreglu­menn sem fyrstir fóru á staðinn hafi verið í mikilli hættu. 15 til 20 lögreglu­menn, auk sérsveitar­manna, tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan sjö í gærmorgun. Lögreglan tilkynnti atburðinn til innan­ríkis­ráðherra og ríkis­saksóknara en embætti ríkis­saksóknara fer með rannsókn málsins.“

„Eins og atriði úr bíómynd“

Í samtali við MBL sjónvarp lýsti Einar Símonarson, íbúi í Hraunbæ aðstæðum „Þetta leit út eins og atriði í bíómynd.“

Nágrannar, búsettir í Hraunbæ vöknuðu á mismun­andi tímum við skot­hvellina og svefn­leysi einkenndi nóttina afdrifa­ríku. „ Margir tengdu hljóðin við það að verið væri að sprengja kínverja eða skjóta flugeldum úti á bílastæði,“ segir í grein Morgunblaðins, 3. desember 2011.

„Sigurður Stef­ánsson segir að sér hafi brugðið þegar hann sá sérsveitina ryðjast inn í íbúð mannsins og áttað sig á því að hann hefði verið að skjóta út úr íbúðinni. „Ég var ekki mikið við gluggann eftir að ég fattaði að verið væri að skjóta út af svölunum,“ sagði Sigurður við mbl sjónvarp.“

„ Einn nágranni sem vildi ekki láta nafns síns getið sagði við mbl.is í gærmorgun að maðurinn hefði komið heim með miklum látum um klukkan ellefu á sunnudags­kvöldið, greini­lega ölvaður. „Hundurinn vakti mig klukkan hálfeitt þegar ég var alveg að sofna, hann gelti við fyrsta skot­hvellinn. Ég hélt fyrst að þetta hefði verið árekstur,“ sagði nágranninn en honum kom ekki dúr á auga alla nóttina. Hann sagði að skotið hefði verið út á bílaplan. Lögreglan hefði haft mikinn viðbúnað. Nágranninn segist hafa verið afar hræddur. „Ég viðurkenni alveg að ég grét þegar ég heyrði fyrstu hvellina.“

Kirkjan veitti áfallahjálp

„Þór Hauksson, sóknar­prestur í Árbæ, sagði í gærmorgun að margir íbúar í næsta nágrenni við atburði næturinnar væru í áfalli. Hann kom því á framfæri að íbúar hverfisins gætu komið til kirkjunnar og fengið áfalla­hjálp. Einhverjir hefðu kosið að hringja og aðrir lagt leið sína í kirkjuna.“

Hér er hlekkur á frétt Morgun­blaðsins á tímarit.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá