Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Valdís bar sigur úr býtum: „Þetta er ómetanlegur heiður“

Valdís Steinarsdóttir.
Valdís Stein­ars­dóttir.

Hönnun er mest spenn­andi þegar hönn­uður hafa eitt­hvað að segja með verkum sínum, segir vöru­hönn­uð­ur­inn Valdís Stein­ars­dóttir, sem hlýtur sænsku hönn­un­ar­verð­launin Formex Nova 2020 í ár.

Bioplastic Skin, sem eru umbúðir fyrir kjöt­vöru búnar til úr dýra­húðum.

„Þetta er ómet­an­legur heiður og það er hvatn­ing fyrir mig sem hönnuð að fá svona við­ur­kenn­ingu fyrir mína vinnu,“ segir Valdís þegar hún er spurð hvernig til­finnig sé að vinna til þess­ara virtu verð­laun­ana.

Formex Nova verð­launin er veitt árlega til að beina sjónum að ungum hönn­uðum sem skara fram úr á Norð­ur­lönd­unum og þannig kynna og efla nor­ræna hönnun. Fimm hönn­uðir voru til­nefndir til þeirra í ár og bar Valdís sigur úr býtum. Verð­launin hlýtur hún fyrir verk­efni sín Bioplastic Skin, sem eru umbúðir fyrir kjöt­vöru búnar til úr dýra­húðum og Just Bones, sterkt nátt­úru­legu efni sem ein­göngu er unnið úr beinum.

„Þetta er hluti af rann­sóknum sem ég hef verið að vinna þar sem ég tek fyrir efni sem kjöt­iðn­að­ur­inn býr til og eru van­nýtt,“ lýsir Valdís. „En ég hef lagt mikla áherslu á efn­is­rann­sóknir í minni vinnu þar sem ég finn leiðir til að nýta van­nýtt líf­ræn efni. Í gegnum þessar rann­sóknir tekst ég oft við mál­efni sem mér finn­ast erfið og krefj­andi með það fyrir augum að skapa til vett­vang til að ræða mál­efni frá nýjum hliðum.“

Just Bones er sterkt nátt­úru­legt efni sem ein­göngu er unnið úr beinum.

Hún segir að með þessum verk­efnum vilji hún opna á umræðu um neyslu­venjur okkar sem sam­fé­lags, en í umsögn dóm­nefndar er Valdísi einmitt lofuð í hástert fyrir að hafa lagt metnað í hönnun ein­stakra lausna á vanda­málum sem eru bæði af sam­fé­lags­legum og umhverf­is­legum toga. Þá er henni hrósað fyrir að gera það í opnu sam­tali við áhorf­endur. Finnst henni mik­il­vægt að hönn­uðir taki sér stöðu sam­fé­lags­rýnis?

„Hönnuðir geta auð­vitað verið mik­il­vægir sam­fé­lags­rýnar,“ segir hún. „Í vinnu okkar tökum við oft að okkur hlut­verk sögu­manns og reynum að setja hluti fram á auð­skilj­an­legan hátt. Og per­sónu­lega finnst mér hönnun vera mest spenn­andi þegar hönn­uðir hafa eitt­hvað segja með verk­efnum sínum.“

Valdís hefur meðal ann­ars hlotið fyrstu verð­laun á Paris Design Forum og verið til­nefnd til nýsköp­un­ar­verð­launa for­seta Íslands. Hér eru þau Valdís og Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands á Hönn­un­ar­Mars.

Valdís útskrif­að­ist frá vöru­hönn­un­ar­deild Lista­há­skóla Íslands árið 2017. Hún hefur meðal ann­ars hlotið fyrstu verð­laun á Paris Design Forum og verið til­nefnd til nýsköp­un­ar­verð­launa for­seta Íslands. Hún segir að sænsku Formex Nova hönn­un­ar­verð­lunin gefi henni færi á að ná til enn fleira fólks en áður og fyrir það sé hún mjög þakk­lát.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.
Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Heimur

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni