Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Prófessorinn gantast með ný götuheiti í borginni.

Eiríkur Rögnvaldsson
Eiríkur Rögn­valds­son Eiríkur er með húmor­inn í lagi Mynd: Árnastofnun

Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafa­prófessor í íslenskri málfræði, hefur fengið ýmsar hugmyndir að nýjum götu­nöfnum í Reykjavík á morgun­göngum sínum með eiginkonu sinni.

Eiríkur segir í spaugilegri Facebook-færslu að hann fái „ýmsar góðar hugmyndir að vannýttum götu­nöfnum í stíl við nöfn sem fyrir eru“.

Í Rauða hverfinu í Holtunum telur hann til að mynda að mætti bæta við götunum Meinhollti, Óhollti og jafnvel Þjóðhollti.

„Háteigs­kirkja gæti staðið við Drottin­hollt,“ skrifar Eiríkur og bætir við að hann viti vel að „hin holtin eru bara með einu l-i en fram­burðurinn er eins“.

Eiríkur sér einnig ýmsa möguleika í kringum Hrefnu­götu.

„Í grennd við Hrefnu­götu mætti hafa fleiri hvala­heiti,“ segir hann og nefnir Búrhvals­götu, Háhyrnings­götu og Steypi­reyðar­götu.

Hann tekur þó fram að hann viti að „Hrefnu­gata er ekki kennd við hval“.

Karlagata gefur honum sömuleiðis tilefni til orða­leikja. Þar mætti að hans mati bæta við Hákarla­götu og Stórkarla­götu.

„Já, ég veit að hún er kennd við þrælinn Karla,“ bætir Eiríkur við.

Hann fer síðan enn lengra í hugmyndunum og beinir sjónum sínum að Vitastíg.

„Svo að farið sé aðeins lengra mætti skipta Vitastíg niður þannig að helmingurinn af honum héti Hálfvita­stígur, eða oddatölu­megin héti hann Oddvita­stígur,“ stingur hann upp á í gríni.

Eiríkur virðist því hafa nóg af hugmyndum fyrir götu­nafnanefnd og lýkur færslunni á orðunum:

„Ég ætti líklega að bjóða mig fram í götu­nafnanefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“