Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Ísraelar skutu kasólétta konu til bana – Fóstrið dó einnig þar sem herinn bannaði sjúkraflutning

Ísraelsher er einn allra grimmasti her heims.
Ísra­els­her er einn allra grimmasti her heims. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ísra­elski her­inn hefur aukið árásir sínar á hernumdum Vest­ur­bakk­anum og drepið tvær konur, þar af var önnur komin átta mán­uði á leið, þegar árás var gerð í Nur Shams-flótta­manna­búð­irnar á palest­ínsku yfir­ráða­svæð­inu.

Her­menn­irnir skutu á palest­ínska fjöl­skyldu í búð­unum og drápu Sondos Jamal Muhammad Shalabi og særðu eig­in­mann hennar alvar­lega, sagði palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neytið í yfir­lýs­ingu í gær.

Ráðu­neytið sagði að læknateymi hefðu ekki getað bjargað fóstri hinnar 23 ára konu þar sem ísra­elski her­inn kom í veg fyrir að þau gætu flutt slas­aða parið á sjúkra­hús.

Í annarri yfir­lýs­ingu sagði ráðu­neytið að 21 árs kona, Rahaf Fouad Abdullah al-Ashqar, hafi einnig verið myrt af ísra­elskum her­mönnum á heim­ili sínu.

Wafa-frétta­stofa Palest­ínu sagði að ísra­elski her­inn hefði gert áhlaup á búð­irnar í hernumdu Tulkarem-hér­aði á Vest­ur­bakk­anum snemma á sunnu­dag og komið fyrir þunga­vinnu­vélum og jarð­ýtum og ráð­ist inn á tugi heim­ila á meðan njósn­a­flug­vélar flugu í lít­illi hæð.

Heim­ild­ar­menn á staðnum sögðu Al Jazeera Arabic að þeir heyrðu einnig hljóð af mik­illi skot­hríð og risa­stórum spreng­ingum.

Árásir Ísra­els­hers á Vest­ur­bakk­anum hafa stór­auk­ist frá því að vopna­hléinu var náð á Gaza.

Tulkarem-her­fylk­ing palest­ínska íslamska jihads­ins sagði að hún hefði komið í veg fyrir inn­rás Ísra­els­hers inn í Nur Shams.

Áður sagði Rauði hálf­mán­inn í Palest­ínu einnig að ísra­elskir her­menn hafi komið í veg fyrir að læknateymi þeirra kæmust inn í búð­irnar, þrátt fyrir fregnir af mann­falli.

Ísraelar, sem full­yrtu að aðgerð þeirra hefði miðað að því sem það kall­aði „trufl­andi starf­semi“ í búð­unum, hefur sett útgöngu­bann á svæðið.

Árásin á Nur Shams-búð­irnar er hluti af vikna löngum hern­að­ar­að­gerðum ísra­el­skra her­manna á norð­ur­hluta hins hernumda Vest­ur­bakk­ans, sem bein­ast að Jenin, búðum í Tulkarem og Far’a í Tubas-hér­aði.

Árás­irnar hafa hrakið meira en 26.000 Palest­ínu­menn frá heim­ilum sínum í Jenin og Tulkarem und­an­farnar vikur.

Vopnahléið á Gaza nær ekki til Vesturbakkans

Frá því að til­kynnt var um vopna­hlé á Gaza í síð­asta mán­uði hafa Ísraelar aukið tíðni og ákafa árása þeirra á hernumdum Vest­ur­bakk­anum.

Wafa greindi frá því að fleiri ísra­elskir her­sveitir hafi verið sendar í átt að Far’a-búð­unum frá Hamra-eft­ir­lits­stöð­inni, þar sem ísra­elskir her­menn halda áfram að eyði­leggja inn­viði og einka­eignir á svæð­inu.

Árásir á heim­ili borg­ara og yfir­heyrslur á vett­vangi hafa einnig staðið yfir, degi eftir að ísra­elskir her­menn fluttu tugi fjöl­skyldna með valdi á brott, en sumar þeirra hafa nú leitað skjóls í skólum. Að minnsta kosti átta Palest­ínu­menn voru hand­teknir í Far’a.

Nour Odeh hjá Al Jazeera, sem starfar í Amman í Jórdaníu segir að fram­ferði Ísraels á Gaza sé nú end­ur­tekið á hernumdu Vest­ur­bakk­anum.

„Yfirlýst mark­mið þess­arar [ísra­elsku] hern­að­ar­árásar [á hernumdum Vest­ur­bakk­anum]… er undir merkjum eða yfir­skini að berj­ast gegn svoköll­uðum hryðju­verkum,“ sagði hún. „En áætlun þess­arar [ísra­elsku] sam­steypu­stjórnar inni­hélt, löngu fyrir 7. októ­ber 2023, inn­limun hernumda Vest­ur­bakk­ans,“ bætti Odeh við.

„Þannig að til þess að gera það, hafa [ísra­elskir] ráð­herrar opin­ber­lega og ítrekað sagt að þeir verði fyrst að gleyma þeirri hug­mynd að frelsi Palest­ínu­manna sé mögu­legt, hreinsa svæðið af eins mörgum Palest­ínu­mönnum og mögu­legt er og hvetja til sjálf­viljugra fólks­flutn­inga þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Sykur og sumar súkkulaðivörur hafa lækkað í verði, en egg og mjólkurvörur hækkað. Engin ein verslun er ódýrust á öllum könnuðum vörum.
Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Heimur

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Fimm börn voru meðal þeirra sem særðust. Sex ára drengur, Cole Adrian, var annar þeirra sem létust.
Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson