Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hnífamaður stakk mann í bakið og slapp undan lögreglu – Óður maður á skemmtistað

Myndin tengist pistlinum ekki beint
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði nóg að gera í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar.

Ferða­maður nokkur flúði af veitinga­stað í miðbænum án þess að borga reikninginn. Komst hann undan en lögreglan rannsakar málið.

Tilkynnt var um hóps­lagsmál í miðbænum og þá datt aðili af rafmagns­hjóli, einnig í miðbænum. Lögreglan og sjúkralið kom á vettvang og hlúði að aðilanum sem hlaut áverka á andliti við fallið. Ekki var um að ræða alvarleg meiðsl.

Þá missti aðili meðvitund í miðbænum eftir að hafa dottið aftur fyrir sig. Var aðilinn fluttur á slysa­deild með sjúkrabíl til frekari aðhlynningar.

Aðili var stunginn í bakið í miðbænum en gerandinn flúði vettvang og er enn leitað. Árásar­þolinn var fluttur með meðvitund á slysa­deild til frekari aðhlynningar. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Í Hafnar­firði handtók lögreglan óðan mann inni á skemmtistað. Gisti hann fanga­geymslu í nótt vegna ástands.

Í Kópavogi veittist maður að starfs­fólki í apóteki en var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Einnig barst lögreglu tilkynning um þjófnað í Smáralind. Sá grunaði var kærður fyrir þjófnað.

Tilkynning barst svo lögreglu í Breið­holtinu um hóp af krökkum sem voru að reyna að kveikja í leik­tækjum á skólalóð. Voru krakkarnir farnir þegar lögreglan mætti á vettvang og engar skemmdir að sjá.

Lögreglan var kölluð að skemmtistað í Grafar­voginum vegna slagsmála en ástandið var þegar orðið rólegt þegar hana bar að garði og engin krafa um aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið