Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Eiríkur er látinn fyrir aldur fram – Einn vinsælasti útvarpsmaður landsins

Eiríkur Guðmundsson, Mynd/skjáskot: Rúv
Eiríkur Guð­munds­son, Mynd/skjá­skot: Rúv

Eiríkur Guðmundsson útvarps­maður og rithöfundur er látinn aðeins 52 ára að aldri. Eiríkur fæddist þann 28. september 1969 í Bolungavík. Eftir hann liggja fjöldinn allur af skáld­verkum og þjóð­félags- og menningar­umfjöllunum.

Eiríkur útskrifaðist frá Mennta­skólanum við Sund árið 1988, lauk B.A. prófi í almennri bókmennta­fræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og M.A. prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla. Eiríkur starfaði sem þátta­stjórnandi á Rás eitt og stýrði þar meðal annars menningar­þáttunum Víðsjá og Lestinni.

Fyrsta bók Eiríks, 39 þrep á leið til glötunar, kom út árið 2004. Árið 2008 kom út bók Eiríks um skáldskap Steinars Sigurjóns­sonar, Nóttin samin í svefni og vöku, en Eiríkur ritstýrði endur­útgáfu heildar­verka Steinars þetta sama ár. Þá skrifaði Eiríkur ritdóma og tímarits­greina um menningu, bókmenntir og samfélag. Skáld­sagan hans 1983 var svo tilnefnd til Íslensku bókmennta­verð­launanna árið 2013. Síðasta verk Eiríks kom út árið 2018 og ber heitið Ritgerð mín um sárs­aukann árið.

Í frétt á Vísi má nálgast viðtal við Eirík sem birtist í október árið 2018, en þar ræddi Vísir við Eirík í tilefni af útkomu bókar hans Ritgerð mín um sárs­aukann.

Eiríkur lætur eftir sig einn son, Kolbein Orfeus og stjúpdóttur, Vöku Blöndal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið