Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þetta þáði Bankasýslan að gjöf á einu ári – „Heitir þetta ekki mútur?“

Í aðdrag­anda sölunnar á Íslands­banka bauð bankinn Jóni Gunnari Jónssyni, forstjóra Banka­sýslunnar, tvisvar út að borða. Í fyrra skiptið var reikningurinn upp á 34 þús. kr. á mann og í seinna skiptið hljóðaði reikningurinn upp á 48 þús. kr. á mann.

Þetta kemur fram í minnis­blaði Banka­sýslunnar til Alþingis. Í minnis­blaðinu kemur fram að Jón Gunnar borðaði tuttugu sinnum í hádeginu í boði hagsmuna­aðila, en það kemur ekki fram hversu háir reikningarnir voru. Eina sem er vitað er að Jón borgaði ekki reikningana sjálfur og það gerðu ekki heldur þeir starfs­menn Banka­sýlsunnar sem með honum voru í för.

Píratinn Björn Leví Gunnarsson birti á Facebook-síðu sinni úr minnis­blaðinu til þingsins og undir þræðinum spyrja ýmsir: „Heitir þetta ekki mútur?“:  Hér fyrir neðan má sjá hvað það er sem Jón Gunnar og félaga hjá Banka­sýslu ríkisins þáðu á því ári sem um ræðir:

Frá 23. apríl 2021 og til 13. apríl 2022 átti Banka­sýsla ríkisins 20 vinnu­fundi þar sem veitingar voru í boði með ýmsum fjármála­fyrirtækjum. Starfs­menn stofnunarinnar áttu ekki slíka fundi með neinum öðrum aðilum. Þessa fundi átti stofnunin með eftir­töldum fjármála­fyrirtækjum (í stafrófsröð): ABN AMRO, Arctica Finance, Barclays, Fossar markaðir, Íslands­banki, Íslensk verðbréf, Íslenskir fjár­festar (nú ACRO verðbréf), Kvika banki og Lands­bankinn. Þessir vinnu­fundir áttu sér yfirleitt stað í hádeginu, þ.e. aldrei kvöldverðar­fundir, og var um að ræða hóflegar veitingar í samræmi við það. Kostnaður við veitingar á hvern þátt­takenda var því óveru­legur.

 Máls­verðir í tengslum við frumútboð

Til að fagna frum­útboði á hlutum í Íslands­banka, sem lauk í júní 2021, voru haldnir tveir kvöld­verðir, sem starfs­menn Banka­sýslu ríkisins sóttu.24. september 2021Kvöldverður með fyrirtækja­ráðgjöf og verðbréfa­miðlun Íslands­banka. Kostnaður á hvern þáttakanda var um 34 þúsund kr., sem greiddur var af bankanum. (Forstjóri og starfs­menn).30. nóvember 2021Kvöldverður með fulltrúum þriggja umsjónar­aðila, tveggja fjármála­ráðgjafa og þriggja lögfræðilegra ráðgjafa. Kostnaður á hvern þátt­takanda var um 48 þúsund kr., sem var greiddur af þremur umsjónar­aðilum útboðsins.(Forstjóri og starfs­menn).

Tækifæris­gjafir

Eftir­farandi tækifæris­gjafir voru gefnar um jól og áramót 2021 til að þakka fyrir gott samstarf í tengslum við frum­útboðið fyrr á árinu. Í öllum tilfellum var um að ræða gjafir til starfs­manna stofnunarinnar frá eftir­töldum aðilum (í stafrófsröð).Frá ACRO verðbréf­umVínflaska. Kostnaður var um 4.000 kr.Frá Íslenskum verðbréfumTvær vínflöskur. Samtals kostnaður var um 8.000 kr.Frá LandsbankanumKonfektkassi. Kostnaður var 4.067 kr.Frá lögmanns­stofunni BBA/FjeldcoKokteilasett. Kostnaður við hverja jólagjöf var um 20 þúsund kr.Frá verðbréf­miðlun og fyrirtækja­ráðgjöf Íslands­banka­Stöðluð jólagjöf bankans til stærri viðskipta­vina þessara deilda. Ein léttvíns­flaska og smáréttir. Kostnaður við hverja jólagjöf var um 14 þúsund kr.Frá vini forstjóra, sem starfar hjá fjármála­fyrirtæki­Flugeldur. Kostnaður var um 2.500 kr. Þetta hefur verið staðfest sem vinagjöf af viðkomandi einstaklingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning