Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Katrín sálfræðingur ósátt: „Þarna var fullorðið fólk að hóta þolendum og foreldrum þeirra ofbeldi“

Katrín Mjöll Halldórsdóttir sálfræðingur.
Katrín Mjöll Hall­dórs­dóttir sál­fræð­ingur.

Nokkuð ljóst er að samskipti barna og unglinga hafa breyst á undan­förnum árum með tilkomu samfélags­miðla; breytingarnar eru örar og það er auðvelt að missa sjónar á samskipta­mynstri unga fólksins, ef foreldrar sofa á verðinum og fylgjast ekki með sem skyldi.

Spegillinn ræddi þetta breytta samskipta­mynstur ungmenna og foreldra við Katrínu Mjöll Halldórs­dóttur og Sturlu Brynjólfsson sálfræðinga hjá Litlu kvíða­meðferðar­stöðinni og umsjónar­menn podcastsins Kvíða­kastsins.

„Út frá umræðunni í síðustu viku þá hefur maður tekið eftir því, og reyndar í svolítinn tíma, að umhverfið í kringum börnin okkar er svolítið að breytast“ segir Katrín Mjöll og bætir við:

„Umhverfið er orðið meira stafrænt og fólk hefur aukið aðgengi að börnunum okkar allan sólar­hringinn. Og maður hefur áhyggjur af því. Ekki aðeins hefur hver sem er aðgang að börnunum okkar heldur er þetta oft fólk sem er nafnlaust. Og maður veit ekki hvort þetta er full­orðinn einstaklingur eða einhver í bekknum eða hver það er sem getur verið að áreita barnið manns. Þetta er náttúru­lega umhverfi sem maður hefur áhyggjur af. Síðan er það ákveðin normalísering sem maður tekur eftir þegar krakkarnir tala um auknar hótanir. Það er verið að hóta þeim með líkamlegu ofbeldi og senda þeim skilaboð sem lýsa sér sem andlegt ofbeldi. Þetta er eitthvað sem ég hef áhyggjur af í dag.“

Sturla bætir við:

Sturla Brynj­ólfs­son sál­fræð­ingur.

„Það er búið að normalisera ofbeldis­skilaboð og mér finnst eins og krakkir tali um það í dag eins og það sé bara eðlilegt. Og þessar breytingar með stafrænu þróuninni. Það er áhugavert að samskiptin hafa einhvern veginn almennt minnkað meðal fólks, en á sama tíma hafa þau aukist. Hvaða áhrif hefur þetta til lengri tíma?“ spyr Sturla.

Með þessu á Sturla við að samskiptin maður á mann hafi minnkað, en aukist að sama skapi á snjall­tækjunum:

„Ég man þegar ég var að alast upp að þá þekkti maður fólkið í hverfinu. Núna er maður að tala við krakka í Mosfellsbæ sem eru að hanga með krökkum í Hafnar­firði og tala við krakka úr öðrum hverfum. Þetta hefur verið mjög hröð þróun síðustu ár.“

Katrín Mjöll segir:

„Maður tekur eftir því að foreldrar barna þekkja foreldra vina barna sinna ekki eins vel og áður. Börn eru eins og svampar. Þau sjúga inn í sig allt sem er að gerast í umhverfi þeirra. þess vegna er mjög mikilvægt, ef við hugsum það út frá foreldrum, að þeir þurfa að vera fyrir­myndir. Það fór mjög fyrir brjóstið á mér þegar ég skoðaði fréttirnar síðustu daga og kommenta­kerfin að þá var fullorðið fólk að hóta gerendum, þolendum og foreldrum þeirra ofbeldi. Og maður hugsar; þetta eru fyrir­myndirnar, þetta er fullorðna fólkið á samfélags­miðlunum. Þarna þarf fullorðna fólkið að vera fyrir­myndir. Bæði hvernig það hagar sér á samfélags­miðlum, en líka heima. Hvernig talað er um fólk heima fyrir framan börnin sín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning