Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ormarnir í gulli verkafólksins

Drífa Snædal og Sólveig Anna hafa staðið í lillindum.
Drífa Snædal og Sólveig Anna hafa staðið í lillindum.

Uppnámið á þingi Alþýðu­sambands Íslands vekur til umhugsunar um það gagns­leysi sem er af verkalýðs­félögum. Þremenningarnir sem klufu sambandið hafa væntanlega talið það vera óþarft og jafnvel til óþurftar. Þeir horfa til þess að hvert og eitt félag geri meira gang en sameinað afl.

Launþegar og atvinnu­rekendur leggja verkalýðs­félögunum til gríðarlegt fjármagn. Aðild að verkalýðs­félagi er íþyngjandi í þeim skilningi að háar upphæðir eru dregnar af launum fólks til að halda kerfinu gangandi. Félögin eru ekki aðeins að gæta hagsmuna sinna félags­manna, heldur einnig að leigja þeim aðgang að orlofs­húsum, hjálpa til við tann­viðgerðir og jafnvel aðstoða við að jarð­syngja félags­menn. Minnsti þátturinn er sá að gera kjara­samninga eða gæta kjara félags­manna. Tekjur til félaganna hlaðast gjarnan upp í sjóði sem gefa færi á því að beita afli á ýmsum sviðum.

Verka­lýðs­for­ingjar eru gjarnan að ásæl­ast völd

Verkalýðs­félögin í landinu eru sum hver gegnsýrð af þeirri spillingu sem felst í valda­tafli af ýmsu tagi. Pólitík er eins og rauður þráður í samtökum þeirra og jafnvel stofnaðir stjórn­málaflokkar sem nýta sér það afl sem liggur í verkalýðs­félögum. Forkólfar félaganna taka sér laun sem í flestum tilvikum eru langt yfir launum félags­manna þeirra. Þannig er formaður í stærri verkalýðs­félögum með laun sem eru yfir milljón á mánuði. Hæstu heildar­laun verkalýðs­foringja eru nær tveimur milljónum króna mánaðar­lega. Það eru fjórföld laun þeirra skjólstæðinga sem hafa lægstu launin. Með réttu ætti verkalýðs­foringi að vera með tekjur sem nema meðal­launum í félagi hans. Annað lyktar af sjálftöku.

Verkalýðs­foringjar eru gjarnan að ásælast völd. Oft er það samtvinnað við lífeyris­sjóðina sem er annað risavaxið bákn sem fjarlægst hefur félags­menn sína. Sjóðum er safnað og ormarnir í gullinu hagnast á braski með almannafé. Völdin í lífeyris­sjóðunum og verkalýðs­hreyfingunni samtvinnast síðan og spillingin mynd­gerist. Hagsmunir fólksins verða auka­atriði en völdin aðal­atriði.

Það er vandséð hvað óbreyttur félagi í verkalýðs­félaginu Eflingu græðir á því að leggja til langt yfir 10 prósent af launum sínum til lífeyris­sjóðs og verkalýðs­félags. Ofsagróði lífeyris­sjóðanna fer gjarnan í það að næra sjálft kerfið og leita leiða til þess að skerða útborganir til eigenda lífeyrisins eða að minnsta kosti tryggja að þær hækki ekki. Raunin er gjarnan sú að þegar láglaunafólk kemst á aldur er elli­lífeyrir ríkisins gjarnan hærri en sú upphæð sem lífeyris­sjóðir reikna einsaklingunum. Lífeyris­greiðslur falla því óbættar niður og starfs­maðurinn hefur borgað til einskis alla sína starfsævi.

Árangur verkalýðs­félaganna undan­farna áratugi er afskaplega dapur. Reglulega er stiginn stríðs­dans og kröfur settar fram um háar kjara­bætur. Lyktir eru gjarnan moðsuða sem felur í sér kyrrstöðu eða jafnvel afturför. Þetta á við um flest verkalýðs­félög.

Barátta þremenninganna sem klufu Alþýðu­sambandið ætti að verða fólki hvatning til þess að siðvæða verkalýðs­félög og lífeyris­sjóði í því skyni að létta launþegum lífið. Lækka þarf útgjöld félaganna og sjóðanna og auka þannig tekjur launþega. Hófsemi ætti að vera leiðar­ljósið í þeim efnum. Eigendurnir verða að rísa upp gegn óþurftar­fólkinu.

Nýtt hefti Mannlífs kemur út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning