Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Nýr forseti Ferðafélags Íslands: „Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta“

Sigrún Valbergsdóttir.
Sigrún Val­bergs­dóttir.

Nýr forseti Ferða­félags Íslands, Sigrún Valbergs­dóttir, hefur sent frá sér tilkynningu sem stílaða á félaga í FÍ; kemur þar fram meðal annars að vegna ólýðræðislegra vinnu­bragða Önnu Dóru Sæþórs­dóttur hafi öll stjórnun innan félagsins verið komin í óefni:

„Kæri félagi í Ferða­félagi Íslands, Starfsemi Ferða­félags Íslands hefur verið í miklum blóma undan­farin ár, félags­menn hafa aldrei verið fleiri, félags­starfið öflugt og fjár­hagurinn sterkur. Undan­farið ár hefur hins vegar hvílt skuggi yfir starfi stjórnar félagsins vegna alvarlegs samskipta­vanda á milli forseta og stjórnar­fólks annars vegar og forseta og framkvæmda­stjóra hins vegar.“

Hún nefnir að „fram til þessa hefur stjórnin talið rétt að greina félags­fólki ekki frá þessum vanda­málum í þeirri von að þau væri hægt að leysa með farsælum hætti og með hagsmuni félagsins að leiðar­ljósi. Því miður er ljóst eftir tilkynningu Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, um að hún segði af sér sem forseti Ferða­félags Íslands, að svo verður ekki. Stjórn Ferða­félagsins telur rétt að bregðast við þessu með því að upplýsa félaga um aðdrag­anda afsagnar forseta.“

Bætir við að „í kjölfar þess að Anna Dóra var kosin forseti var ljóst að henni fylgdi kraftur og áhugi á að setja mark sitt á starfsemi félagsins. Naut hún í upphafi stuðnings og trausts allra í stjórn. Meðal annars var ráðist í stefnu­mótunar­vinnu fyrir Ferða­félag Íslands til næstu fimm ára, verklags­reglur um góða stjórnar­hætti endur­bættar og verk­ferlar er snerta einelti, kynferðis­lega eða kynbundna áreitni og ofbeldi uppfærðir.

Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnu­brögðum forseta og mikilvæg mál ekki borin undir stjórn eins og vera ber. Stærsti ásteytingar­steinninn var þegar forseti vildi einhliða skipta út framkvæmda­stjóra okkar, Páli Guðmunds­syni, án þess að fyrir því lægju málefnalegar ástæður og engin formleg tillaga um slíkt hefði verið borin undir stjórn.

Án samráðs ákvað forseti engu að síður að hefja viðræður um starfslok við framkvæmda­stjórann og það án vitundar stjórnar.“

Sigrún segir að „þegar stjórnin komst að því, og lýsti sig ósammála, urðu öll samskipti við forseta mjög erfið. Í framhaldi tók við tímabil þar sem framkoma forseta gagnvart framkvæmda­stjóra gerði honum erfitt að sinna starfi sínu. Í byrjun júní sl., á háannatíma félagsins, varð stjórn ljóst að ekki yrði búið við óbreytt ástand, enda hagsmunir félagsins í húfi. Stjórn lagði því fram tillögu við forseta þar sem óskað var eftir því að hún héldi sig til hlés um stundar­sakir á meðan leitast væri við að leysa samskipta­vandann. Forseti hafnaði því líkt og tillögu stjórnar um að leita til utan­aðkomandi ráðgjafa til að bæta samskiptin.“

Hún nefnir að „á sama tíma hafði framkvæmda­stjóri lagt fram formlega kvörtun vegna eineltis af hálfu forseta og voru nýuppfærðar verklags­reglur Ferða­félagsins í eineltis­málum því virkjaðar og leitað aðstoðar utan­aðkomandi sérfræðinga. Í kjölfar þess barst stjórn tölvu­póstur frá forseta með ávirðingum um að rekstur félagsins væri í ólestri. Þessar full­yrðingar voru alveg á skjön við ræðu forseta á aðalfundi í mars sl. og ársskýrslu stjórnar sem samþykkt var á sama fundi, en þar kom einmitt fram að rekstur félagsins stæði einstak­lega vel. Til þess að bregðast við þessum athuga­semdum forseta ákvað stjórn að fá álit endur­skoðanda sem staðfesti að reksturinn væri traustur og fjárhags­staða sterk og þau gögn lögð fyrir á stjórnar­fundi þann 28. júní sl. Forseti kom einnig með athuga­semdir við það hvernig haldið hefði verið á málum sem upp hafa komið innan félagsins í samskiptum einstaklinga, og varða m.a. kynferðislegar áreitni. Gagnrýndi hún ýmist að framkvæmda­stjóri hefði eytt of miklum tíma í að sinna þeim málum eða að of lítið væri gert. Á sama stjórnar­fundi var því lögð fram greinar­gerð um hvernig tekið hefði verið á slíkum málum hjá félaginu undan­farin fimm ár. Þar kom m.a. fram:

„Alls hafa komið upp sex mál á sl. fimm árum hjá Ferða­félagi Íslands sem varða kynferðis­lega áreitni, kynbundið ofbeldi eða einelti. Öllum málunum er lokið nema eitt er í skoðun hjá faglegum utan­aðkomandi aðila. Málin voru ýmist leyst með sátt á milli aðila, afsögn, skriflegri áminningu, tiltali og tilfærslu í starfi eða samstarfi var hætt eða það ekki endurnýjað. Af þessum sex málum voru fjögur á vettvangi félagsins og tvö utan starfsemi félagsins. Ferða­félag Íslands er með viðbragðs­áætlun vegna áreitis­mála og er hún hluti af stjórn­kerfi félagsins og er virkjuð ef mál eru tilkynnt til félagsins.“

Sigrún ljær máls á því í tilkynningunni að „allt þetta ár hefur stjórn Ferða­félagsins leitað allra leiða til að leiða þessi samskiptamál við forseta til lykta með farsælum hætti fyrir félagið. Okkur þykir miður að það tókst ekki. Stjórnin mun engu að síður halda áfram að leita leiða til þess að tryggja frið um starfsemi félagsins og verða þessi mál tekin til umræðu á næsta aðalfundi þess. Í stóru félagi eins og FÍ geta komið upp ýmis álitamál í samskiptum einstaklinga og í þeim tilvikum sem borist hafa kvartanir hefur verið tekist á við þær með faglegum hætti og í samræmi við viðbragðs­áætlun. Stjórn Ferða­félags Íslands er skipuð fjöl­breyttum hópi sjálfboða­liða úr ólíkum áttum, bæði konum og körlum. Það er ósk okkar að blómleg starfsemi FÍ fái áfram að vaxa og dafna með sameinuðum kröftum okkar allra. Virðingar­fyllst Reykjavík, 28. september 2022. Fyrir hönd stjórnar Ferða­félags Íslands, Sigrún Valbergs­dóttir forseti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning