Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dularfullur dauði fimm yrðlinga í greni á Hornströndum: „Ég spyr mig hvort þetta sé fuglaflensa“

Mynd/samsett Óútskýrður yrðlingadauði
Mynd/sam­sett Óút­skýrður yrð­linga­dauði

Grunur leikur á að fugla­flensa hafi borist í refi í Látravík á Horn­ströndum. Aðeins einn yrðlingur af sex lifir. Jón Helgason var skála­vörður hjá Ferða­félagi Íslands í Látravík í sumar. Hann hirti hræið af dauða yrðlingnum og afhendir Náttúru­fræði­stofnun það til rann­sóknar.

„Ég spyr mig hvort þetta sé fugla­flensa sem er að leggjast á refina þarna fyrir norðan,“ segir Jón og staðhæfir ekkert en segir ljóst að eitthvað sé að breytast í lífríkinu.

Í samtali við Mannlíf greinir Jón frá því að á tíma­bilinu 10. júlí og fram til 5. ágúst hafi einvörðungu einn yrðlingur af sex komist á legg.

„Þegar ég kom í Látravík aftur var aðeins einn yrðlingur á lífi en þeir voru sex þegar ég kom á svæðið 10. júlí,“ segir Jón.

Ester Rut Unnsteins­dóttir, spendýra­vist­fræðingur, hjá Melrakka­setri Íslands, fer fyrir vöktun íslenska refa­stofnsins í samstarfi við Náttúru­fræði­stofnun Íslands. Jón hafði samband við hana „Ég hringdi strax í hana þegar ég tók eftir því að yrðlingarnir voru að týnast“.

Jón hirti því eitt hræanna til rann­sóknar.

Fugla­flensa hefur verið staðfest hér á landi. Fjöldi dauðra fugla hefur fundist.  Viðbragðs­áætlun Matvæla­stofnunar virkjuð: „Fuglaflensu­veiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Mein­virkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niður­staðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknar­stofum.“

Hornbjarg er þjóð­garður þar er ríkt fugla- og dýralíf. Refirnir á svæðinu eru friðaðir og eru einkum spakir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið