Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Erna Ýr efast um ekkert í Rússlandi: „Þeir sem reyna að „svindla“ verða sóttir til saka“

Erna Ýr Öldu­dóttir, sem er hvað þekktust fyrir vafasamar skoðanir sínar, er mætt til Moskvu. Þar fylgdist hún í gær með kosningum sem fáir utan Rússlands taka mark á. Hún sá ekkert athuga­vert við framkvæmd þeirra, enda allt svindl bannað samkvæmt embættis­mönnum sem hún ræddi við.

Umræddar kosningar eru á vegum stjórn­valda í Rússlandi og lepp­stjórnar hernumda svæða í Úkraínu. Kosið er um hvort téð svæði verði innlimuð í Rússland. Óhætt er að segja að fáir nema bandamenn Rússland taki mark á þessum kosningum eða telji þær lögmætar.

Erna Ýr er löngu orðin þekkt meðal lands­manna fyrir efahyggju, svo sem hvað varðar hlýnun jarðar eða gagn bólu­setningar gegn COVID. En sú efahyggja virðist hafa gufað upp í Rússlandi. Hún skrifar frétt framkvæmd kosninganna sem birtist á Fréttinni.is, en ritstjórinn Margrét Friðriks­dóttir var fjarri góðu gamni þar sem henni var meinað að ferðast með Icelandair fyrir helgi.

Erna Ýr lýsir framkvæmd kosninganna svo: „Kjör­stjórnir eru eingöngu mannaðar fólki frá svæðunum sem nú ganga til atkvæða­greiðslunnar, samkvæmt upplýsingum sem blaða­maður fékk á staðnum. Til að fá kjörseðil, þarf að sýna skilríki, vegabréf útgefið á umræddum svæðum og fylla út umsóknar­eyðublað. Blaða­maður fylgdist með í framkvæmd þegar kjósendur komu til að greiða atkvæði. Þeir sem myndu reyna að kjósa oftar en einu sinni eða reyna með öðrum hætti að „svindla“ verða sóttir til saka af stjórn­völdum, skv. kjör­stjórn.“

Samkvæmt henni virðist einungis eitt varpa skugga á þessar kosningar, þvermóðska Úkraínu­manna. „Ónefndur heimilda­maður greindi frá því að faðir hennar sé íbúi í Donetsk, sem sé undir stöðugum sprengju­árásum frá úkraínska hernum. Til viðbótar gerði úkraínski herinn sprengju­árás á hótel í Kherson í gær, þar sem tveir almennir borgarar létu lífið. Færa þurfti einn kjörstað vegna árásanna og annarsstaðar var rætt um að kjósa í loftvarna­byrgi. Talið er að árásirnar nú séu til að hræða fólk frá því að mæta á kjörstað,“ segir Erna Ýr og bætir við:

„Til viðbótar hafa stjórn­völd í Kænugarði hótað þeim allt að fimm og jafnvel tíu ára fangelsis­vist sem taka þátt í atkvæða­greiðslunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning