Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Árni Þórður sonur Sigga storms loksins útskrifaður: „Dásamleg og ólýsanleg tilfinning“

Flottir feðgar.
Flottir feðgar.

Eins og kemur fram í Frétta­blaðinu er Árni Þórður, sonur Sigga Storms, nú útskrifaður eftir heila tíu mánaða dvöl á Land­spítalanum, þar sem hann barðist hetjulega fyrir lífi sínu eftir alvarlega líffæra­bilun. Og hafði betur.

Siggi stormur og fjöl­skylda eru því eðlilega í skýjunum:

„Þetta eru vissulega stórkostleg kaflaskil og er dásamlegt,“ segir Siggi Stormur.

Árni Þórður veiktist af alvarlegri líffæra­bilun rétt fyrir síðustu jól; var vart hugað líf, og hans bíður nú eftirlit, tímar hjá meltingarsérfræðinum; blóð­prufur og sneið­myndatökur:

„Fyrir okkur foreldrana og fjöl­skylduna er þetta hálfgert krafta­verk. Það er eiginlega ekkert hægt að lýsa því öðruvísi. Hann var svo svakalega veikur og það leist ekki öllum á blikuna á tímabili,“ segir Siggi sem er þakklátur Guði og mönnum fyrir bata sonar síns:

„Það var dásamleg og ólýsanleg tilfinning hvað svona góðar kveðjur geta stutt mann þegar öll sund virðast lokuð. Ég get aldrei þakkað þeim sem með einum eða öðrum hætti sýndu styrk og góðan hug. Þegar svona kemur upp þá er maður svo aleinn í eyði­mörkinni, maður er alveg hjálpar­laus því maður kann auðvitað ekkert í læknis­fræðum. Getur ekkert gert og þarf að treysta á Guð og lukkuna, góða lækna og hjúkrunar­fólk. En ég fann að ég var ekki einn.

Það voru svo margir sem sendu hlýja strauma og ég fann það standandi einn í myrkrinu. Það voru margir sem hringdu, sendu mér skilaboð og gáfu mér góð ráð og sendu góðar hugsanir. Nokkuð sem ég varð mjög meyr yfir.

Þetta var hryllingur. Þetta stóð yfir svo lengi og hann varð svo veikur svo lengi.

Ég verð að koma ítrustu þökkum til þeirra sem hjálpuðu okkur í gegnum þetta. Við stöndum í mikilli og ævarandi þakkar­skuld, hvort sem það eru heilbrigðis­starfsmenn eða fólkið í landinu. Takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning