Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meinta hryðjuverkamálið: „Hann heldur að Píratar séu sjóræningjar en ekki stjórnmálaflokkur“

Sveinn Andri Sveinsson er verjandi annars mannanna, sem nú situr í gæslu­varðhaldi; grunaður um skipulagningu hryðju­verka. Segir Sveinn Andri að umbjóðandi hans sé meinleysis­grey sem ekki gæti gert flugu mein; segist enga trú hafa á að mennirnir tveir verði ákærðir fyrir skipulagningu hryðju­verka.

Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. Mynd/ Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Fram hefur komið að Lands­réttur staðfesti nýverið úrskurð héraðs­dóms um fjögurra vikna gæslu­varðhald yfir mönnunum; þeir voru teknir höndum fyrir um það bil fjórum vikum.

Mennirnir eru grunaðir um vopna­lagabrot og að hafa framleitt skotvopn með þrívíddar­prentara; einnig fyrir að hafa rætt sín á milli í gegnum netskilaboð þar sem fram kom vilji til að fremja hryðju­verk á Íslandi sem og tilræði við þekkta Íslendinga.

Sveinn Andri segir að „eftir samtöl við minn umbjóðanda sýnist mér að það hafi verið farið fullgeyst af stað í þessu máli með blaðamanna­fundum og öðru slíku og efnis­atriði málsins sýnist mér vera þannig að þarna er um að ræða vopna­lagabrot,“ og bætir við að umbjóðandi hans hafi gengist við vopna­lagabroti; mennirnir hafi þó ekki verið farnir að grípa til raun­verulegra aðgerða; einungis sé til staðar spjall þeirra á milli:

„Misheppnað grín hjá þessum tveimur drengjum; en að um sé að ræða skipulag hryðju­verka á opinni spjallrás, það stenst engan vegin. Minn umbjóðandi er meinleysis­grey og gerir ekki flugu mein; eins langt frá því að vera efni í hryðju­verkamann og hugsast getur. Hann hefur engan áhuga á stjórn­málum, heldur að Píratar séu sjóræningjar en ekki stjórn­málaflokkur og svo framvegis,“ segir Sveinn Andri og bætir við:

„Ég er ekki viss að það nái svo langt að þeir verði ákærðir fyrir tilraun til hryðju­verka. Ég efast að málið nái svo langt. Mín tilfinning er sú að þeir endi á að verða ákærðir fyrir vopna­lagabrot og þeir muni játa þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning