Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sveppameðferð bjargaði lífi Þorsteins Úlfars: „Oftar en þrisvar staðið á brúninni með að drepa mig“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er enginn annar en rithöfundurinn, afglæpa­sinninn og hampaktivistinn Þorsteinn Úlfar Björnsson. Hér er brot úr viðtalinu.

Glímdi við þunglyndi í 30 ár

Gunnar spurði Þorstein hvort að THC í það litlu magni að það valdi ekki vímu, sé óhollt fyrir fólk. „THC er ekki óhollt, punktur. Þeir eru búnir að reyna að drepa hunda, þeir eru búnir að reyna að drepa fólk, með því að gefa þeim hreint THC.“

Gunnar spurði þá að bragði „Já en hvað gerir THC fyrir okkur?“ Þorsteinn glotti og svaraði: „Það lætur okkur líða vel.“ Gunnar spyr áfram „Burtséð frá því, af því að þú getur tekið snefil­magn af THC og þú ert kannski ekki að upplifa mikla vímu, hvað er það að gera fyrir kerfið?“ „Þetta hefur sjálfsagt til dæmis róandi áhrif eða einhver áhrif hefur hann ef hann virkar þannig en þetta er allt í rann­sóknum og óstaðfest sjáðu til.“

Gunnar sagði Þorsteini frá því að CBD hefði breytt lífi hans síðustu ár og hafði Þorsteinn frá svipaðri reynslu að segja en í hans tilviki var það sveppurinn sem bjargaði bókstaf­lega lífi hans. „Eins og sílósíbin gerði fyrir mig,“ sagði Þorsteinn og átti við sveppa­meðferð gegn þunglyndi. „Ég fór í svona sólósíbin meðferð, búinn að vera að drepast úr þunglyndi í 30 ár og hef oftar en tvisvar og oftar en þrisvar staðið á brúninni með að drepa mig. Ég fer í eina meðferð, eina alvöru meðferð fyrir þremur árum, það er undir­búningur með sálfræðingi, það er meðferð með meðferðar­aðila sem sat yfir mér allan tímann og svo eftir­vinnsla á eftir. Og ég var bara „Vá, þetta var mögnuð reynsla og bla, bla, bla“ en svo líða einhverjar þrjár vikur og ég er úti í bílskúr eitthvað að gera, sennilega að troða mér í pípu eða eitthvað, þegar ég finn þessa gamal­kunnu tilfinningu, svona doða­tilfinningu í herðunum og niður hand­leggina. Ekki óþægileg tilfinning, ekki þægileg en óhugnanleg tilfinning vegna þess að ég vissi hvað hún táknaði. Ég hugsaði með mér „Ó fuck, er ég að fá þunglyndis­kast núna?“ en svo liðu fjórar, fimm sekúndur og ég hugsaði bara „Nei, ég er ekki að fá þunglyndis­kast núna, þetta er bara rugl“ og hélt áfram. Og ég hef ekki fundið fyrir þunglyndi síðan!“

En hvað er það sem sveppurinn er að gera fyrir mann í svona meðferð?

„Hann er að endur­tengja heila­brautir sem þú hefur ekki notað síðan í frum­bernsku. Rétt á meðan þú ert á trippinu.“

Gunnar spyr þá hvort hann skilji þetta rétt, að þegar tilfinningin kemur, sem hann tengdi áður við þunglyndis­kast, getur hann um leið hoppað yfir í aðra tengingu og komið þannig í veg fyrir kastið. Sagði Þorsteinn að það væri alveg rétt skilið hjá honum.

Búfénaður hætti að nærast á hampi

Wiium bræður minnast á það í viðtalinu að vitað sé um sirka 130 ólíkir kannabínóðar Kannabis­plöntunar en þeir þekktustu eru THC og CBD. Þeir kannabínóðar eru mest rann­sakaðir og því mest vitað um þá. Má segja að THC sé eini kannabínóðinn í plöntunni sem veldur vímu­áhrifum á meðan kannabínóði eins og CBD veldur ekki vímu. Rann­sóknir hafa sýnt að CDB sé að hafi gríðar­lega mikil áhrif á hug og líkama í gegnum kerfi sem er skamm­stafað ECS en stendur fyrir endocannabinoid system.

Þetta kerfi var uppgvötvað fyrir um 30 árum síðan af ísraelskum vísinda­mönnum.
Um er að ræða kerfi innan líkama hverrar manneskju sem er sérstak­lega hannað til að taka á móti kannabínóðum og aðeins þeim. Þekktir viðtak­arar innan þessa kerfis voru tveir þar til fyrir stuttu er einn til viðbótar bættist við. Síðan Kannabis komst á svarta listann fyrir um 100 árum hefur ECS kerfið svelt og eru afleiðingarnar afar slæmar.

Búfénaður sem áður nærðist á hampi fór að éta gras og það þýddi að við fórum að hætta að fá CBD meðal annars með kjötinu sem við átum, mjólkinni sem við drukkum og eggjunum sem við borðuðum. Læknar fengu ekki að uppá­skrifa Kannabis lengur og því hvarf virkni þessa kerfis og heldur Þorsteinn að þess vegna séum við að horfa á vaxandi sjúkdóma tengt bólgum svo eitthvað sé nefnt sem og geðsjúk­dóma og vaxandi alkahólisma.

Möguleikar hampsins óendandlegir

Mögu­leikar hampsins sem hráefni eru óendanlegir. Þeir ræddu um í viðtalinu hvernig bæta þurfa inniviði hamp­ræktar á Ísland með reynslu sem og aukinna möguleika á nýtingu og sölu hampsins eftir ræktun. Þetta vildi Þorsteinn meina að sé í vinnslu og að þetta ferðalag taki tíma og að við séum að sjá breytingar í veldis­vexti frá ári til árs.  Þorsteinn sér mikinn möguleika í hampinum á Íslandi og segir að við eigum í raun ekki annarra kosta völ en að færa okkur inn í umhverfis­vænni fram­leiðslu á hráefnum fyrir iðnað. Hann segist vera bjartsýnn og viti að miklar breytingar séu í vændum og að stór­fyrirtækin sjái hag sinn í auknu mæli í að rækta hamp eða kaupa hamp af bændum landsins.

Þegar Þorsteinn er beðinn um að koma með lokaorð stendur ekki á svari: „Það þarf að afglæpa­væða þetta og fara að framleiða lyfjahamp. Og gera út á túrista, það er gert í Hollandi, þar gera þeir út á Kannabis-túrisma sem skilur eftir mikinn pening í hagkerfinu. Tælendingar gera þetta líka. Þjóð­verjar, Ítalir og Frakkar, þeir gera út á gott vín, af hverju gerum við ekki út á gott Kannabis? Það er miklu minna vesen af Kannabis-reykjurum en fylli­byttum nokkurntímann.“

Þennan afar athyglis­verða þátt má sjá i heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan eða heyra á flestum streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt