Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Svarar ekki spurningum um framkvæmdir við Valhöll – Vinir Sjálfsstæðisflokksins byggja 48 íbúðir

Sjálfstæðis­flokkurinn svarar engu um framkvæmdir sem nú standa yfir á lóð Valhallar í Reykjavík. Byggingar­félag tengt flokknum annast framkvæmdirnar.

Þórður Þór­ar­ins­son

Húsið sem byggt verður á lóð Valhallar verður um 5.000 fermetrar og í því 48 íbúðir á fimm til sex hæðum. Þá verða skrif­stofur einnig í húsinu. Fjölga á bíla­stæðum úr 88 í 125 og hjóla­stæðum úr engu í 115.

Það er Bygginga­félag Gylfa og Gunnars hf (BYGG) sem annast framkvæmdirnar en félagið er vel tengt Sjálfstæðis­flokknum og hefur meðal annaars styrkt flokkinn með háum upphæðum.

Mannlíf hefur ítrekar reynt að fá svör við spurningum um framkvæmdirnar sem nú standa yfir, frá framkvæmdar­stjóra flokksins, Þórði Þórarins­syni, í gegnum síma, tölvu­póstsendingum og með því að kíkja í Valhöll en án árangurs. Aðstoðar­menn hans hafa í þremur tilfellum sagst ætla að benda Þórði á að svara tölvu­póstum Mannlífs en enn bólar ekkert á svörum.

Þórður Þór­ar­ins­son

Eftir­farandi spurningar voru sendar á Þórð:

1. Seldi Sjálfstæðis­flokkurinn lóðina? Ef svo, hver var sölu­upphæðin? Ef ekki, er Sjálfstæðis­flokkurinn sjálfur í þessum framkvæmdum?
2. Ef það er flokkurinn sjálfur sem er í þessum framkvæmdum, hvers vegna var ákveðið að fara í þær?
3. Hver er áætlaður hagnaður af þessum framkvæmdum eða viðskiptum, miðað við áætlanir?
4. Hvað stendur til að nota áætlaðan hagnað af þessum viðskiptum í?
5. Stefnir Sjálfstæðis­flokkurinn á frekari framkvæmdi eða uppbyggingu annars staðar?

Virði lóðarinnar

Miðað við fyrir­liggjandi gögn hjá Fasteigna­mati Ríkisins má byggja á lóðinni 48 íbúðir sem eru að meðaltali 80,4 fermetrar á stærð og samkvæmt upplýsingum frá fasteigna­sölum sem Mannlíf hafði samband við má reikna með, miðað við kaup á lóðum undan­farin misseri að virði lóðarinnar sé að minnsta kosti 585 milljónir og 540 þúsund krónur, miðað við birta fermetra íbúða sem finna má hjá Þjóðskrá. Þar er talað um eina verslun sem verður 94,7 fermetrar á stærð og því metin á rúmar 6 milljónir. Ekki liggja fyrir upplýsingar í Þjóðskrá um fjöldi skrifstofu­rýma og stærð þeirra og því er virði lóðarinnar talsvert meira en upp er gefið hér að ofan þar sem skrifstofu­fermetrinn er dýrari en íbúðar­fermetrinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning