Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Haffi stendur með sjálfum sér: „Ég er blússandi samkynhneigður og trúaður, og vil fá Trump aftur”

Hafsteinn Þór Guðmundsson, eða Haffi Haff, eins og hann er ávallt nefndur, var í afar skemmtilegu og fróðlegu viðtali hjá Sölva Tryggva­syni – og lét bara allt flakka, eins og hans er von og vísa:

„Ég vil lifa eftir því mottói að vera alltaf ég sjálfur. Það þýðir líka að þora að segja skoðanir sínar án þess að skammast sín fyrir þær. Ég er blússandi samkyn­hneigður maður sem vill fá Trump aftur, sem fer í kirkju og eltir Jesú; klæði mig í sundbol þegar ég fer í sund; það er ég að vera algjör­lega ég sjálfur; stend með sjálfum mér, óháð hvað öðru fólki finnst. Ég hef alltaf verið öðruvísi; ætla að halda því áfram – ef það þýðir að ég sé samkvæmur sjálfum mér.”

Haffi ólst upp í Banda­ríkjunum; hefur ávallt verið með annan fótinn þar – og Haffi er ekki spenntur fyrir núverandi stjórn­völdum:

„Ég get í það minnsta sagt að ég var blekktur. Þetta er ekki það sem ég ætlaði að kjósa. Þessi ríkis­stjórn er slæm og ég er eiginlega farinn að grátbiðja um appelsínu­gula slæma kallinn aftur. Ég vil einhvern sem getur komið saman heilum setningum. Joe Biden er bara partur af gömlu góðu elítunni sem reynir að höfða til fólks með því að lofa hinu og þessu; ganga í augun á fólki með alls konar slagorðum. En svo eru aðgerðirnar allt aðrar en það sem var lofað fyrir kosningar. Við erum komin þangað að fólk verður að fara að vakna og spyrja spurninga.”

Og Haffi trúir á Guð og vill Donald Trump aftur:

„Orðin Trump og Jesús eru mest pólariserandi orðin í heiminum í dag. En ég er tilbúinn að tala um Trump og Jesú, af því að ég vil vera og er heiðar­legur við sjálfan mig og aðra. Ég virði að annað fólk hafi aðrar skoðanir en ég, en að sama skapi finnst mér ég hafa fullan rétt á mínum skoðunum; við eigum að virða rétt allra til ólíkra skoðana; við lifum saman á þessari jörð; eigum margt sameiginlegt. Það að við séum með ólíkar skoðanir á einstökum málum á að vera eðlilegt og það þýðir ekki að okkur geti ekki þótt vænt um hvort annað.”

Eins og áður var nefnt er Haffi trúaður maður – hann er messu­þjónn í Hallgríms­kirkju. En fjöldi fólks gefur af tíma sínum í Hallgríms­kirkju og eru messu­þjónar sjálfboða­liðar sem taka þátt í öllum messum kirkjunnar; lesa Biblíu­texta, útdeila í altaris­göngum og fleira.

„Ég man þegar ég byrjaði að fara í kirkju var ég alltaf að bíða eftir því að ég ætti að finna fyrir skömm, en svo kom það ekki; bara falleg tónlist – góður boðskapur og fólk að koma saman í einlægri orku. Ég tók ákvörðun um að læra meira og taka trúna alvarlega. Fékk Nýja Testamentið gefið og byrjaði að lesa. Það tók mig heil fjögur ár að klára að lesa það og ég sá hvergi í bókinni að ég mætti ekki vera eins og ég vildi vera. Nú er trúin og kirkjan stór hluti af lífi mínu; ég er messu­þjónn í Hallgríms­kirkju; sem að mínu mati er fallegasta bygging Norður­landa. Það eru allir velkomnir í kirkju og ég hef tekið þá ákvörðun fyrir mig að kirkjan verði hluti af mínu lífi.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning